Fjölmiðlanefnd aðhefst ekki 1. júní 2012 03:15 Elfa Ýr Gylfadóttir
Fjölmiðlanefnd hefur ekki heimild til að grípa til viðurlaga vegna þeirrar ákvörðunar Stöðvar 2 að bjóða aðeins Ólafi Ragnari Grímssyni og Þóru Arnórsdóttur að taka þátt í umræðuþætti á sunnudag. Nefndin hefur ekki heldur heimild til að gefa fjölmiðlaveitum fyrirmæli um hvernig umfjöllun þeirra í aðdraganda kosninga skuli háttað. Þetta kemur fram í tilkynningu frá nefndinni. Þingmenn Hreyfingarinnar höfðu sent fjölmiðlanefnd erindi vegna ákvörðunar Stöðvar 2. Þá höfðu frambjóðendur gert athugasemdir við fyrirkomulagið. Vísað hefur verið í 26. grein fjölmiðlalaganna, þar sem kemur fram að fjölmiðlaveitur eigi að halda í heiðri lýðræðislegar grundvallarreglur. Þá eigi þær að gæta þess að uppfylla kröfur um hlutlægni og nákvæmni í umfjöllun sinni um fréttir og fréttatengt efni og gæta þess að mismunandi sjónarmið komi fram. Fjölmiðlanefnd segir í tilkynningu sinni að hvað sem úrræðum nefndarinnar líði standi þessi grein eftir sem stefnuyfirlýsing sem fjölmiðlaveitum beri að hafa í heiðri. Nefndin hvetur til þess að þær hugmyndir sem búi að baki þessari grein laganna verði hafðar í huga á næstu vikum og gætt verði að því að sjónarmið allra forsetaframbjóðenda fái að koma fram. - þeb
Forsetakosningar 2012 Mest lesið Vance ætlar ekki að horfa á aftökuna í beinni Erlent „Við erum næstum að kæfa framhaldsskólastigið“ Fréttir Trump samdi við Pútín um dísel Erlent Skrúðgangan bönnuð eftir tveggja vikna pattstöðu Erlent Seldu óvart hjól viðskiptavinar Innlent Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Innlent Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Innlent Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Innlent Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Innlent Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Innlent Fleiri fréttir Keyrði á og flúði en skildi númeraplötu eftir Seldu óvart hjól viðskiptavinar Sigurveig I. Jónsdóttir er látin Þingmenn laumuðust í laugina eftir lokun Katrín ekki í forsetaslaginn og deilur skekja ASÍ fyrir þing Bein útsending: Af minkum og mönnum Þau vilja stýra Fjölmiðlanefnd Þrír unglingar á breyttu hjóli en VÍS ber samt ábyrgð Einn fékk fimm ár, annar átján mánuði en þriðji sýknaður Líklegt að Íslendingar finni óbeint fyrir El niño Ísraelskum ferðamönnum mismunað á veitingastað vegna uppruna Óskar svara eftir að faðir missti dóttur sína erlendis Segir sáttina kosta ríkissjóð 1,6 milljarða til viðbótar Kannast ekkert við brot og munu aðstoða við rannsókn Úrskurðaður í farbann Afskipti formanns Eflingar séu með ólíkindum Í beinni frá höfuðstöðvum Ölgerðarinnar Borað eftir heitu vatni í Laugardal Friðarsúlan hefur kostað rúmar hundrað milljónir króna Hellisheiðin lokuð til vesturs Borgin afturkallar lóðir trúfélaganna Lokun einu innilaugar sveitarfélagsins íbúum mikið áfall Maður réðst á annan og skemmdi bíl Bílastæði eða bekkir og blómapottar? Vilja auka viðveru NATO í norðri Máttu tæma lónið „Varpar skugga á skólasamfélagið í heild“ „Ég fagna því að þessu leikriti sé lokið“ Þetta eru aðgerðirnar sem fara á í Ók lyfjaður á gangandi vegfaranda Sjá meira