Annað árið í röð dregur lið sig úr keppni korteri fyrir mót | KA/Þór ekki með Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 14. september 2012 14:30 Mynd/kagirls.bloggar.is
Handknattleiksdeild KA hefur ákveðið að draga lið KA/Þórs úr efstu deild í kvennahandbolta og senda liðið í 2.deild/Utandeild í staðinn. Norðanmenn sendu frá sér yfirlýsingu í dag vegna málsins. KA/Þór stóð sig vel í N1 deild kvenna í fyrra ekki síst eftir áramót og var að lokum aðeins einu stigi frá því að komast í úrslitakeppnina. KA/Þór var eitt af tólf liðum í N1 deild kvenna í vetur en nú standa því 11 lið eftir og lenda stelpurnar því enn á ný í því að sitja hjá í tveimur umferðum. Þetta er ennfremur annað árið í röð sem lið dregur sig úr keppni í N1-deild kvenna rétt fyrir mót en svo var líka raunin hjá Fylki í fyrrahaust. Fylkisliðið er hinsvegar með í ár og vonandi koma KA/Þór-stelpurnar líka sterkar inn á næsta ári. Fylkisliðið missti marga lykilmenn fyrir tímabilið í fyrra og sömu sögu er að segja að liði KA/Þór og það er höfuðástæðan í báðum tilfellum að félögin draga liðin sín úr keppni. Liðin sem skipa N1 deild kvenna í vetur eru því: Selfoss, Afturelding, FH, Fram, ÍBV, Grótta, Fylkir, Valur, HK, Stjarnan og Haukar. Selfoss, Afturelding og Fylkir voru ekki með í fyrra.Yfirlýsing frá Handknattleiksdeild KA Handknattleiksdeild KA hefur ákveðið að draga lið KA/Þórs úr efstu deild í kvennahandbolta og senda liðið í 2.deild/Utandeild í staðinn. Ástæðan er sú að liðið hefur misst 5 reynslumestu leikmenn sína frá síðasta keppnistímabili, þar af tvo í þessari viku. Því telur stjórn Handkattleiksdeildar KA að yngri leikmönnum sé enginn greiði gerður með því að senda þær í efstu deild, en aðeins 2-3 stúlkur í hópnum hafa reynslu af því að leika þar. Stefnan er sett á markvissar æfingar í vetur og keppni með það að markmiði að eiga aftur lið á meðal þeirra bestu á næsta hausti.
Olís-deild kvenna Mest lesið Kinu Rochford sagður myrtur Körfubolti Goðsögnin lætur Ancelotti heyra það: „Rífið samninginn hans strax“ Fótbolti Súrrealískt að spila golf með Trump Fótbolti Segir að það þurfi að skipta oftar um gervigras á Íslandi Fótbolti Suður-Afríka syrgir landsliðsmann skömmu eftir HM Fótbolti Fyrrverandi stjarna í enska boltanum handtekin Enski boltinn Maður dagsins á HM: Tveimur árum of seinn á veitingastaðinn Fótbolti Eiga Englendingar kryptónítið hans Haaland uppi í erminni? Fótbolti Tindastóll mætti ekki til leiks Íslenski boltinn Með Haaland á toppi vinsældalistans Fótbolti Fleiri fréttir Strákarnir áfram í milliriðil á EM „Eitthvað sem maður verður að læra af honum“ Tólf mörk Ágústs en tap gegn meisturunum Upplifun að koma á svæðið og skrifa undir Frábær byrjun hjá ungu strákunum okkar Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Sjá meira