Enn vinnur Fram sigur á KR – sjáið mörkin Kolbeinn Tumi Daðason skrifar 23. febrúar 2012 22:50 Halldór Hermann Jónsson var á miðjunni hjá Fram að vanda.
Framarar unnu 2-1 sigur á KR í viðureign liðanna í Lengjubikarnum í Egilshöll í kvöld. Þetta var þriðji sigur Framara á Íslands- og bikarmeisturunum úr Vesturbænum í röð. Framarar komust yfir á 29. mínútu með marki frá Samuel Hewson. Kristinn Ingi Halldórsson, hinn eldfljóti kantmaður Framara, sendi þá fyrir markið frá hægri á Steven Lennon sem brást bogalistin í dauðafæri. Boltinn hrökk upp í loftið en Hewson var fyrstur að átta sig og kom boltanum yfir línuna. KR-ingar, sem höfðu verið sterkari aðilinn fram að markinu, létu markið ekki slá sig út af laginu. Aðeins mínútu síðar sendi Dofri Snorrason, sem lék í stöðu vinstri bakvarðar í kvöld, fyrir markið á kollinn á Kjartani Henry Finnbogasyni sem skallaði glæsilega í fjærhornið. Sigurmarkið kom um miðjan síðari hálfleikinn. Þá átti Lennon, sem skoraði öll fimm mörk Fram í 5-0 sigri þeirra á KR í úrslitaleik Reykjavíkurmótsins á dögunum, gott skot fyrir utan teig. Fjalar Þorgeirsson varði skotið beint út í teiginn þar sem Kristinn Ingi lagði boltann snyrtilega í netið með hnénu. Fleiri mörk voru ekki skoruð og eru Framarar með fullt hús stiga að loknum tveimur leikjum. Þetta var fyrsti leikur KR-inga í keppninni en þeir léku án Hannesar Þórs Halldórssonar og Skúla Jóns Friðgeirssonar sem eru með íslenska landsliðinu í Japan. Mörkin má sjá á vef Sport TV með því að smella hér.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Ísland - Úkraína | Sigur mikilvægur ef HM draumurinn á að raungerast Fótbolti Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn Svona kynnti HSÍ nýja samninginn við Snorra og Arnór Handbolti Liverpool - PSG | Þurfa sinn besta leik gegn Evrópumeisturunum Fótbolti Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport FH - Haukar | Stál í stál í baráttunni um Hafnarfjörð Handbolti Njarðvík - Grindavík | Allt undir hjá heimamönnum Körfubolti „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn Biðst afsökunar á bræðiskasti sínu á Masters-mótinu Golf ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Fleiri fréttir „Hleyp jafn hratt og Mikael“ Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina Sjá meira