
Ótvíræður árangur
Með fjárlögum ársins 2012 sem Alþingi samþykkti í vikunni var stigið mikilvægt skref að hallalausum ríkisrekstri. Gera fjárlögin ráð fyrir rúmlega 20 milljarða króna halla eða 1,16% af vergri landsframleiðslu. Hallinn á næsta ári verður því tífalt minni en hann var þegar núverandi ríkisstjórn tók við ríkisfjármálunum. Árið 2008 var hann 216 milljarðar, 140 árið 2009, 120 árið 2010 og 46 á þessu ári. Þessi þróun sýnir þann árangur sem náðst hefur og hversu stutt er í að ríkisfjármálin verði kominn á sjálfbæran grunn. Umbyltingin hefur þó ekki orðið án fórna því ríkisstjórnin hefur þurft grípa til mikilla aðhalds- og tekjuöflunaraðgerða sem reynt hafa á almenning í landinu.
Launa- og bótahækkanirSá mikli árangur sem þegar hefur náðst við að ná niður fjárlagahallanum hafa meðal annars skapað nægilegt svigrúm til að mæta útgjöldum vegna tímabærra kjarabóta. Síðastliðið vor náðist samkomulag á vinnumarkaði um talsverðar launahækkanir næstu árin. Hafa þær umtalsverðan kostnaðarauka í för með sér fyrir ríkið vegna hækkana hjá opinberum starfsmönnum auk verulegra hækkana til almannatrygginga- og atvinnuleysisbóta. Fjárlög 2012 gera ráð fyrir að kostnaður ríkissjóðs við þessar hækkanir og verðlags- og gengisuppfærslur nemi 26,8 milljörðum króna.
Samhliða samkomulagi við aðila vinnumarkaðarins var ráðist í umtalsverðar hækkanir á lífeyri, örorku- og atvinnuleysisbótum. Þannig hækkaði grunnlífeyrir, aldurstengd örorkuuppbót, tekjutrygging og heimilisuppbót um 8,1% frá 1. júní 2011. Með því hækkaði lágmarkstrygging þeirra sem hafa engar tekjur aðrar en bætur almannatrygginga um 12.000 krónur. Grunnatvinnuleysisbætur hækkuðu einnig um 12.000 krónur í tæpar 162.000 krónur á mánuði.
Til viðbótar þessum bótaflokkum var ráðist í hækkanir á endurhæfingarlífeyri, barnalífeyri, uppbót á lífeyri og sérstakri uppbót til framfærslu, vasapeningum og örorkustyrk um 8,1%. Sama máli gegnir um mæðra- og feðralaun, umönnunargreiðslur, maka- og umönnunarbætur, barnalífeyri vegna menntunar, dánarbætur, foreldragreiðslur, fæðingarstyrk og ættleiðingarstyrki. Í fjárlagafrumvarpi næsta árs er gert ráð fyrir áframhaldandi hækkunum á alla þessa flokka þ.m.t. laun umfram verðlagsþróun þannig að sú kaupmáttaraukning sem hófst með þessum aðgerðum heldur áfram, ekki síst sökum þess að persónufrádráttur verður nú að fullu verðtryggður. Til viðbótar þessu má loks geta að fjárlög 2012 gera áfram ráð fyrir útgreiðslu vaxtabóta upp á 18 milljarða króna.
Ýmsir hafa spurt hvers vegna ekki sé gengið enn lengra í fyrrgreindum hækkunum en vart verður séð annað en allt það svigrúm sem ríkisstjórninni hefur tekist að skapa þrátt fyrir fordæmalausar aðstæður í ríkisfjármálum hafi verið nýtt til þessa. Þá ber að hafa í huga að ríkisstjórnir fyrri tíma og við auðveldari efnahagsaðstæður hafa ekki treyst sér til viðlíka hækkana í þessum efnum.
Varðstaða um velferðarkerfiðRíkisstjórnin, og reyndar Alþingi allt, hefur lagt ríka áherslu á að verja velferðarsamfélagið í gegnum þessa erfiðu tíma. Við vinnslu fjárlagafrumvarps ársins 2012 var, eins og undanfarin ár, forgangsraðað í þágu velferðar og almannaþjónustu og aðferðafræði sem felur í sér flatan niðurskurð útgjalda ekki viðhöfð. Viðmið um samdrátt í útgjöldum voru 3% í almennum rekstri og stjórnsýslu, en 1,5% í velferðarmálum, s.s. heilbrigðisþjónustu, skólamálum, löggæslu, bótakerfum og sjúkratryggingum. Við meðferð Alþingis á frumvarpinu var ákveðið að ganga enn lengra í þessa átt og var dregið úr aðhaldskröfu á heilbrigðiskerfið sérstaklega líkt og gert var árið 2010. Hefur ríkt pólitísk samstaða um að sé þess kostur að draga enn frekar úr aðhaldskröfu á velferðarliði sé það fyrst gert á sviði heilbrigðismála.
Sterkur efnahagsbatiEftir efnahagshrunið og nú síðustu misserin hefur enginn hörgull verið á spámönnum sem hrópa hátt um að allt muni eða sé að fara á versta veg. Oft eru þetta þeir sömu og lokuðu augum og eyrum fyrir öllum viðvörunarmerkjum fyrir hrun. Var því meðal annars spáð að með samþykki fjárlagafrumvarps yfirstandandi árs myndi kreppan dýpka með tilheyrandi skelfingu fyrir hið opinbera, heimili og fyrirtæki. Sem betur fer hefur sú spá ekki ræst fremur en margar aðrar í þessa veru. Um það vitna nýjustu tölur Hagstofunnar sem kynntar voru í vikunni.
Efnahagsbatinn á fyrstu níu mánuðum ársins var sterkari en bjartsýnustu greiningaraðilar þorðu að spá. Í nóvember á síðasta ári var gert ráð fyrir hagvexti upp á 2% fyrir árið 2011 en nýjustu tölur Hagstofunnar benda til að hann hafi orðið 3,7% á fyrstu níu mánuðum ársins. Á milli annars og þriðja ársfjórðungs er vöxturinn nær ævintýralegur eða upp á 4,7%. Til að setja þessa tölu í samhengi þá er vöxturinn á þriðja ársfjórðungi innan ríkja ESB að meðaltali 0,3% og mesti hagvöxtur meðal þeirra mældist hjá Rúmeníu upp á 1,8%.
Efniviður heimsendaspámanna til að berja í landsmenn bölmóðinn, svartsýni og sundurlyndi fer sífellt minnkandi. Á aðeins þremur árum hefur Ísland endurheimt efnahagslegt sjálfstæði sitt eftir hrunið 2008 og stefnir markvisst í átt að hallalausum ríkisbúskap og traustari forsendum fyrir sjálfbærum vexti efnahagslífsins. Því ber að fagna um leið og rétt og skylt er að viðurkenna að mörg erfið verkefni bíða engu að síður úrlausnar.
Við erum sannanlega á réttri leið en ekki komin alla leið í mark. Við þurfum að örva fjárfestingu og ná niður atvinnuleysi, gera fjármál ríkis og sveitarfélaga betur og að fullu sjálfbær, treysta forsendur velferðarsamfélagsins til framtíðar litið eins og efni frekast leyfa, hlúa að umhverfinu og okkur sjálfum. En, eftir það sem á undan er gengið er okkur engin vorkunn að klára þau verkefni.
Skoðun

Guðrún Hafsteinsdóttir, leiðtogi með sterka framtíðarsýn
Jón Ólafur Halldórsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, seinni grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Glötuðu tækifærin
Guðmundur Ragnarsson skrifar

Hnignun samgangna og áhrif á ferðaþjónustu og atvinnulíf
Sverrir Fannberg Júliusson skrifar

Ísland á tímamótum – Við skulum leiða gervigreindaröldina!
Sigvaldi Einarsson skrifar

Hvað eru Innri þróunarmarkmið?
Þuríður Helga Kristjánsdóttir skrifar

Hagur okkar allra
Steinþór Logi Arnarsson skrifar

Áskoranir næstu áratuga kalla á fjármögnun rannsókna
Silja Bára R. Ómarsdóttir skrifar

Ég styð Guðrúnu Hafsteinsdóttur sem formann – en hvers vegna?
Karl Guðmundsson skrifar

Smíðar eru nauðsyn
Einar Sverrisson skrifar

Nýsköpunarlandið
Elías Larsen skrifar

Sagnaarfur Biblíunnar – Móse og boðorðin 10
Sigurvin Lárus Jónsson skrifar

Sérfræðingarnir
Sölvi Tryggvason skrifar

Af góða fólkinu og vonda fólkinu í VR og stóra biðlaunamálinu
Arnþór Sigurðsson skrifar

Venjuleg kona úr Hveragerði
Árni Grétar Finnsson,Björg Ásta Þórðardóttir skrifar

Hljóð og mynd fara ekki saman
Hjörtur J. Guðmundsson skrifar

Ertu að grínast með þinn lífsstíl?
Halla Þorvaldsdóttir skrifar

Guðrún Hafsteins er leiðtogi
Eiður Welding skrifar

Öflugur iðnaður, sterkt samfélag – Guðrún Hafsteinsdóttir veit hvað þarf
Hópur iðnaðarmanna skrifar

Óvissuferð Hafnfirðinga í boði Orkuveitu Reykjavíkur
Kristín María Thoroddsen skrifar

Herleysið er okkar vörn
Dr. Ólína Kjerúlf Þorvarðardóttir skrifar

Raddir, kyn og kassar
Linda Björk Markúsardóttir skrifar

Færni á vinnumarkaði – ný námsleið fyrir fólk með þroskahömlun
Helga Gísladóttir skrifar

Framtíðarfyrirkomulag biðlauna formanns VR
Ólafur Reimar Gunnarsson skrifar

Sannanir í dómsmáli? Rithandarrannsóknir, fyrri grein
Jörgen Ingimar Hansson skrifar

Rödd friðar á móti sterkum her
Anna Hildur Hildibrandsdóttir skrifar

Leiðtogi nýrra tíma
Auður Kjartansdóttir,Bjarnveig Guðbrandsdóttir,Brynhildur Einarsdóttir,Guðrún Ingadóttir,G. Sirrý Ágústsdóttir,Hafdís Gunnarsdóttir,Jónas Kári Eiríksson,Júlíus Guðni Antonsson,Ragnhildur Eva Jónsdóttir,Róbert Smári Gunnarsson skrifar

Alþjóðaflugvöllurinn á Akureyri: Hvar er Icelandair?
Birgir Orri Ásgrímsson skrifar

Tollflokkun rifins osts: Rangfærslur og staðreyndir
Erna Bjarnadóttir skrifar

Framtíð löggæslu fínpússuð í tilraunastofunni Gaza
Kristján Þór Sigurðsson skrifar