Lögfræðistofur græddu fjóra milljarða á tveimur árum 30. nóvember 2011 08:30 Logos er ein af stofunum sem græddi vel á hruninu.
Níu lögfræðistofur högnuðust samtals um 1,7 milljarða króna á síðasta ári. Logos hagnaðist langmest þeirra allra í fyrra, um 633 milljónir króna. Þetta kemur fram í ársreikningum lögfræðistofanna. Þær eru Logos, BBA Legal, Lex, Mörkin, Réttur-Aðalsteinsson&Partners, Landslög, Juris, Sigurjónsson&Thor og Lögmál. Bankahrunið sem átti sér stað í lok árs 2008 virðist hafa haft afar jákvæð áhrif á rekstrarafkomu flestra lögfræðistofanna níu. Samanlagt högnuðust þær um 3,7 milljarða króna á árunum 2009 og 2010. Flestar þeirra greiða allan hagnað út sem arð til eigenda sinna. Logos, stærsta lögfræðistofa landsins, er í algjörum sérflokki þegar kemur að hagnaði. Stofan hefur grætt um 1,5 milljarða króna á þessum tveimur árum. Stjórn Logos lagði til að 90% hagnaðarins í fyrra yrðu greidd út sem arður til 16 eigenda stofunnar. Gangi það eftir mun hver þeirra fá um 35,6 milljónir króna í sinn hlut vegna árangurs Logos í fyrra. BBA Legal hagnaðist næstmest þeirra stofa sem Fréttablaðið kannaði. Í fyrra skilaði stofan 252 milljóna króna hagnaði til viðbótar við þær 282 milljónir króna sem hún græddi árið 2009. Samanlagður hagnaður BBA Legal á árunum tveimur er því 534 milljónir króna. Eigendur stofunnar eru sex talsins. Þar af eiga tveir samtals 54% hlut. Sú stofa sem skilaði þriðja mesta hagnaðinum var Lex lögmannsstofa. Hagnaður hennar í fyrra var 194 milljónir króna, sem var nokkru minna en árið áður þegar hún skilaði 291 milljón króna í hagnað. Á tveimur árum hefur Lex því halað inn 485 milljónir króna. Hluthafar Lex eru 17 talsins. - þsj
Fréttir Mest lesið Kaupa Sóma og Þykkvabæ Viðskipti innlent Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Viðskipti innlent Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Viðskipti innlent Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Viðskipti innlent Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Viðskipti innlent Eftir sumarið tekur við óvissa Viðskipti innlent Reynsluakstur: Mjúkur lúxus og moldarslettur í sama pakka Samstarf Land Rover veisla á laugardaginn Samstarf Uppsagnir hjá Bláa lóninu Viðskipti innlent Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Viðskipti innlent Fleiri fréttir Kaupa Sóma og Þykkvabæ Ákvörðun um næsta fund tekin yfir helgina Eftir sumarið tekur við óvissa Yrði fjórði stærsti lífeyrissjóðurinn Kjörin formaður SÍA Sendir flugmönnum tóninn: „Maður mjólkar ekki dauða kú“ Meira atvinnuleysi og fjöldauppsagnir í maí Hásetar fengu tæpar níu milljónir fyrir fimmtán daga Flugrisi eignast allan flugflota Air Atlanta Greiða sér rúmlega tvo milljarða í arð Fá að kaupa Pei og Motus „Við þurfum að fara að spýta í lófana“ Gervigreindargjöf til lýðræðisins Hópuppsögn hjá Rapyd á Íslandi Helmingur Air Atlanta seldur úr landi Uppsagnir hjá Bláa lóninu Segir vanda Icelandair djúpstæðari en samningar flugmanna Fljúga til Færeyja árið um kring Verðbólga hjaðnar minna en vonir stóðu til Verslunin Air lokar í Kringlunni Fundi frestað til morguns Beina því til Storytel að gæta varúðar í markaðssetningu Skipulagsbreytingar hjá Símanum Advania lýkur kaupum á Evolv Stjórn Icelandair með fullt traust til Boga Hyggja á hóteluppbyggingu á milli Hveragerðis og Selfoss Vilja að frítekjumörk örorkulífeyris verði endurskoðuð Klíník og klíník í eina sæng Lokar Sjoppunni eftir sextán ára rekstur Tuttugu stærstu eiga 400 milljarða í öðrum félögum Sjá meira