Skoðun

Verðlagseftirlit á villigötum

Andrés Magnússon skrifar
Verðlagseftirlit ASÍ túlkar niðurstöðu nýrrar verðkönnunar sinnar á þann veg að á kunni að vanta að samkeppni meðal matvöruverslana sé nægjanlega virk. Því til stuðnings bendir verðlagseftirlitið sérstaklega á að hækkanir hafi orðið á kjötvörum um 8 til 45% á sl. 14 mánuðum.

Það sem er rétt hjá eftirlitinu er að miklar hækkanir hafa orðið á kjötvörum á undanförnum mánuðum, en það er hins vegar alröng ályktun að þær megi rekja til þess að ekki sé nægjanleg samkeppni á matvörumarkaði.

SVÞ – Samtök verslunar og þjónustu hafa á undanförnum mánuðum gagnrýnt hækkanir á kjötvörum frá framleiðendum harðlega. Samkvæmt upplýsingum frá aðildarfyrirtækjum samtakanna eru dæmi um hækkanir um allt að 45% á einstaka kjöttegundum. Algengt er að verð á þessum vörum hafi hækkað frá framleiðendum um 20 til 35% á þessu tímabili. Hér er eins og allir vita um að ræða hækkanir sem ekki er hægt að skýra með vísan til þróunar verðbólgu á sama tíma. Á þetta hafa samtökin bent og telja þau að framleiðendur hafi engan veginn getað gefið eðlilegar skýringar á hækkuninni.

Að mati samtakanna er skýringarinnar að leita í því úrelta framleiðslu- og sölukerfi sem byggt hefur verið upp í kringum innlenda landbúnaðarframleiðslu. Það kerfi útilokar nær allan innflutning og þar með alla samkeppni í framleiðslu á landbúnaðarvörum. Kerfið leiðir einnig til vísitöluhækkunar og hækkar þar með skuldir heimilanna í landinu. Margir aðrir en SVÞ hafa gagnrýnt þetta kerfi harðlega, þ.ám. ASÍ. Þó að flestir geri sér grein fyrir því hvar orsakanna sé að leita fyrir hinni miklu hækkun sem orðið hefur á kjötvörum undanfarna mánuði, kýs verðlagseftirlit ASÍ að skýra það með ónógri samkeppni á matvörumarkaði.

Staðreyndin er nefnilega sú að enginn einn markaður hér á landi býr við eins mikið eftirlit af hálfu samkeppnisyfirvalda og matvörumarkaðurinn. Það er beinlínis staðfest af Samkeppniseftirlitinu, m.a. í skýrslu þess frá því á sl. sumri sem ber yfirskriftina „Samkeppni eftir hrun". Þar segir að stórum hluta af tíma eftirlitsins verði hér eftir sem hingað til varið í eftirlit með samkeppni á matvörumarkaði. Í því ljósi er ályktun verðlagseftirlits ASÍ í meira lagi langsótt.

Það eina sem haldið getur aftur af áframhaldandi hækkunum á innlendum búvörum er að heimila aukinn innflutning á þessum vörum. Þar hefur orðið mikill afturkippur þar sem núverandi stjórnvöld gera hvað þau geta til að hindra slíkan innflutning. Það væri nær að SVÞ og ASÍ sneru bökum saman í baráttu fyrir auknu frelsi í viðskiptum með búvörur og einfaldara landbúnaðarkerfi sem leiða myndi til aukinnar hagsældar fyrir heimilin í landinu. Þar er sannarlega verk að vinna.




Skoðun

Sjá meira


×