Körfubolti

Hlynur Bæringsson: Það var gott að fá einn sigur

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Hlynur Bæringsson í leiknum í gær.
Hlynur Bæringsson í leiknum í gær. Mynd/Kristinn Geir Pálsson
Íslenska körfuboltalandsliðið steig skref í átt að því að tryggja sér bronsið á Norðurlandamótinu í Sundsvall með því að vinna níu stiga sigur á Dönum, 85-76, í gærkvöldi. Íslenska liðið hafði frumkvæðið nær allan leikinn en sigurinn var þó ekki í höfn fyrr en í blálokin. Þetta var fyrsti sigur íslenska liðsins undir stjórn sænska þjálfarans Peters Öqvist.

„Þetta var kærkomið. Við ætluðumst til þess af sjálfum okkur að vinna þá og þetta var því mjög gott, sérstaklega af því að við vorum búnir að tapa þessum fyrstu tveimur leikjum. Við ætluðum okkur að vera fyrir ofan Danina," sagði Hlynur Bæringsson, fyrirliði íslenska liðsins. Íslenska liðið komst mest fimmtán stig yfir í þriðja leikhluta en Danirnir náðu muninum niður í fimm stig í lokaleikhlutanum.

„Þetta var komið í smá hættu. Það kom smá rugl, við fengum á okkur tæknivillu og körfu og víti að auki á sama tíma. Það var smá kaos en við fengum í framhaldinu þrist frá Loga sem stoppaði sprettinn þeirra," sagði Hlynur en Logi Gunnarsson var í stuði í gær og skoraði 11 af 24 stigum sínum í lokaleikhlutanum.

„Logi var mjög góður. Við þurftum virkilega á svona ógn að halda eftir að við misstum Jón Arnór. Það minnkaði því miður aðeins sjálfstraustið í liðinu við að missa Jón, okkar besta mann. Logi og Helgi settu niður þessu mikilvægu skot í kvöld," sagði Hlynur en Helgi Már Magnússon setti niður þrjár þriggja stiga körfur í leiknum.

„Við erum að reyna að hugsa fram í tímann og þetta eru fyrstu skrefin hjá okkur. Við viðurkennum það alveg að við þurfum að bæta mikið en fyrsta skrefið er að byrja á einhverju jákvæðu og það var gott að fá einn sigur í kvöld," segir Hlynur, sem viðurkennir að tapið á móti Svíum hafi aðeins setið í mönnum ekki síst þar sem liðið missti Jón Arnór Stefánsson í upphafi leiksins.

„Það var mjög sárt að tapa Svíaleiknum en Finnarnir voru bara betri. Okkur langaði í annað sætið því það er raunhæft markmið að ná Svíunum en Finnarnir eru nokkrum árum á undan okkur. Það er ágætt að ná þriðja sætinu," sagði Hlynur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×