Ógnarstjórn að enda komin 26. febrúar 2011 15:00 Aðalmaðurinn á staðnum Á sameiginlegum leiðtogafundi Arababandalagsins og Afríkuríkja í haust, fáeinum mánuðum áður en mótmælabylgjan skall á. Gaddafí leggur þarna hendur á axlir forsetanna Ali Abdullah Saleh, sem nú á í vök að verjast í Jemen, og Hosni Mubarak, sem hrökklaðist frá völdum í Egyptalandi fyrir skemmstu.nordicphotos/AFP
Lífverðirnir Meðan Gaddafí skoðaði sig um í listasafninu Louvre í París fyrir fáum árum beið lífvarðasveit hans átekta.nordicphotos/AFP Við getum varist hverri árás og við munum, ef þörf krefur, útvega þjóðinni vopn,“ sagði Múammar Gaddafí á Græna torginu í Trípolí í gær, hvergi banginn og fékk að launum hávær fagnaðaróp stuðningsmanna sinna. Þó virðist fátt geta komið í veg fyrir að Gaddafí hrökklist frá völdum á allra næstu dögum. Uppreisnarmenn hafa verið að sækja að höfuðborginni, en liðsmenn Gaddafís fara þar um með vopnum, skjóta á fólk og handtaka. SkrautlegurÍ tjaldi Gaddafís Mubarak Egyptalandsforseti í tjaldinu góða meðan allt lék í lyndi hjá þeim báðum. nordicphotos/AFPGaddafí verður að teljast með undarlegri einræðisherrum nútímans, og hefur þó vart verið skortur á undarlegheitum í fari þeirra ógnarstjóra sem þann hóp hafa skipað. Hann er jafnan skrautlega til fara, klæðist litríkum fötum og berst mikið á. Á ferðum til útlanda hefur hann jafnan með sér fjölmennt fylgdarlið og tjald eitt mikið, sem hann gistir í frekar en að fara á hótel eins og aðrir þjóðhöfðingjar. Einkahjúkrunarkona hans, Galína Kolotnítska frá Úkraínu, er jafnan meðal förunauta hans og sömuleiðis fögur sveit kvenkyns lífvarða, sem vakið hefur athygli og umtal. Sagt er að hann velji þær sjálfur og ófrávíkjanleg krafa sé að þær séu hreinar meyjar, en hvað hæft er í því er ekki gott að segja. PersónuleikatruflunHann komst til valda í byltingu fyrir rúmum fjörutíu árum, þá aðeins 27 ára gamall, en er nú að nálgast sjötugt. Hann hefur verið lengur við völd en nokkur annar þjóðhöfðingi, að tveimur konungbornum undanskildum, þeim Elísabetu Bretadrottningu og Bhumibol Adulyadei Taílandskonungi. Leiðtogar annarra ríkja hafa löngum átt erfitt með að átta sig á honum. „Að okkar mati þjáist hann af alvarlegri persónuleikatruflun,“ segir í skjölum bandarísku leyniþjónustunnar CIA frá árinu 1982, og Anwar Sadat, þáverandi Egyptalandsforseti, sagði eitt sinn um Gaddafí: „Hundrað prósent veikur í hausnum.“ Aftur í náðinaHann veitti hryðjuverkasamtökum víðs vegar um heim lengi vel margvíslega aðstoð, og mátti sæta alþjóðlegum refsiaðgerðum fyrir vikið. Hann sneri svo við blaðinu árið 2003 og var í framhaldinu hampað svolítið af leiðtogum helstu lýðræðisríkja Vesturlanda. Refsiaðgerðum var aflétt og Líbía gat aftur farið að selja olíu í stórum stíl. Haustið 2009 mætti hann í fyrsta sinn á allsherjarþing Sameinuðu þjóðanna í New York og flutti ræðu, sem heimurinn átti harla erfitt með að fá botn í þótt megininntakið hafi verið krafa um að Afríkuríki fengi fastafulltrúa í Öryggisráði Sameinuðu þjóðanna. Hann talaði miklu lengur en ráð var fyrir gert og óð úr einu í annað, allt frá því að krefjast rannsókna á morðum Martins Luthers King og Johns F. Kennedy til þess að spá í hvort svínaflensuveiran væri eiturefnavopn búið til á tilraunastofum. Hann bauðst til þess að flytja höfuðstöðvar Sameinuðu þjóðanna til Líbíu og ítrekaði gamla hugmynd sína um að sameina Ísrael og Palestínu í eitt ríki, sem ætti að heita Ísratína. Eina lýðræðisríki heimsGaddafí hefur sagt að Líbía sé eina lýðræðisríkið í heiminum. Frá 1977 hefur hann sjálfur ekki haft formlega stöðu þjóðhöfðingja, nefnir sig ekki forseta heldur lítur á sig byltingarleiðtoga og eins konar ráðgjafa þjóðarinnar til æviloka. Formlega er stjórnskipun landsins þannig að í hverri borg er kallaður saman almennur borgarafundur nokkrum sinnum á ári. Þeir senda fulltrúa sína á 2.700 manna borgaraþing, sem formlega kýs bæði ráðherra ríkisstjórnar landsins og fer með löggjafarvaldið í samvinnu við ráðherrana. Í reynd er það þó „ráðgjafinn“ Gaddafí sem ræður lögum og lofum í landinu, og hefur þrátt fyrir sérkennilegheit alla tíð sýnt ótvíræða hæfileika til þess að halda völdunum hjá sjálfum sér. Stjórnmálaflokkar eru bannaðir og mótmælasamkomur sömuleiðis. Þegar önnur ráð duga ekki hefur hann ekki vílað fyrir sér að beita grófu ofbeldi til að þagga niður gagnrýni. Fæddur í bedúínatjaldiLíbía er að stórum hluta eyðimörk. Þar búa sex til sjö milljónir manna, flestir við strönd Miðjarðarhafsins og er byggðin að mestu tvískipt, annars vegar vestan til við ströndina í kringum höfuðborgina Trípolí en hins vegar austan til í landinu og þar er Benghazi stærsta borgin. Gaddafí sjálfur er fæddur árið 1942 í bedúínatjaldi í eyðimörkinni skammt frá borginn Sirte, sem stjórnarliðar höfðu enn á valdi sínu í gær. Gaddafí á átta börn, en af þeim er það helst sonurinn Hannibal sem komist hefur í fréttir á Vesturlöndum – fyrir skrautlega hegðun, drykkjulæti og ofbeldi á ferðalögum sínum í Frakklandi, Sviss og á Ítalíu. Annar sonur hans, Saif al-Islam, virðist hafa átt að taka við af föður sínum þegar fram líða stundir, en getur varla haft miklar vonir um það lengur.
Fréttir Mest lesið Viðreisn heldur starfsfólkinu en Jón fær 1,3 milljónir til þingstarfa Innlent Hafi íhugað að gefast upp síðustu vikur Innlent Maður hnoðaður til lífs í Sundhöllinni Innlent Ísland.is-svindlið bjóði hættunni heim Innlent Saka Ingu um skæting og helberan dónaskap Innlent Lækkar eigin laun Innlent Jarðskjálftinn 5,2 að stærð Innlent Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Erlent Þúsundir hvetja til úttektar og ríkissaksóknari íhugar áfrýjun Innlent Íbúarnir höfðu betur Innlent Fleiri fréttir Fara fram á útgöngubann í nokkrum frönskum borgum Sakaðir um að svelta 190 börn til dauða Hótar að auka viðbúnað á landamærunum Miðflokkurinn fær umboðið Borgir geti sett á útivistarbann: „Nemandi hefur misst höndina“ Prestur lést þegar róðukross féll á hann Senda far til að kanna uppruna Fóbosar Ók viljandi á ástralska þingkonu Vill funda með Trump og Xi um örlög Úkraínu Neyðarlending eftir sprengjuhótun Neitaði að samþykkja afsögn vegna mótmælanna Hvetur til stillingar og boðar aðgerðir Selenskí vilji ekki binda enda á stríðið Fjórir hermenn létust í eldsvoða Ræstingakona læstist óvart í fangaklefa í þrjá daga Hörð átök lögreglu og mótmælenda í París Barn og fullorðinn létu lífið þegar bíl var ekið inn á knattspyrnuvöll Landtökumenn réðust á evrópska erindreka Lögreglan skarst í leikinn á mótmælum í Kaupmannahöfn Setti málningu í matinn og eitraði fyrir hundruðum barna Mótmælendur réðust inn í ráðhúsið í Marseille Alvarlega slösuð eftir skotárás í íþróttahúsi Frestar gildistöku refsiaðgerða gegn Rússlandi Faðir tveggja nemenda í skólanum sá sem skaut árásarmanninn Varaði við nýju Rússlandi Pútíns Ástvinir þeirra sem létust í flugslysinu bíða enn Talsmaður Trumps rekinn eftir brösuglega byrjun Deilt um sönnunargögn og mögulegan vitorðsmann Norðmaður í tuttugu ára fangelsi í Bretlandi vegna leigumorðs Landtökumenn börðu og rændu ljósmyndara Washington Post Sjá meira