Körfubolti

Keflavíkurkonur í bikaúrslitaleikinn eftir spennuleik

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Bryndís Guðmundsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir.
Bryndís Guðmundsdóttir og Pálína Gunnlaugsdóttir. Mynd/Daníel
Keflavíkurkonur komust í bikarúrsltialeikinn þriðja árið í röð og í 19. sinn frá upphafi eftir þriggja stiga sigur á nágrönnum sínum í Njarðvík, 72-69, í undanúrslitum Poweradebikars kvenna í körfubolta í Ljónagryfjunni í Njarðvík í kvöld.

Bryndís Guðmundsdóttir var stigahæst hjá Keflavík með 22 stig og Birna Valagarðsdóttir bætti við 13 stigum, 7 fráköstum og 5 stoðsendingum. Marina Caran lék sinn fyrsta leik með Keflavík og skoraði 11 af 13 stigum sínum í seinni hálfleiknum en Jacquline Adamshick var með 12 stig og tók 7 fráköst sem þykir ekki mikið á þeim bænum.

Shayla Fields var atkvæðamest hjá Njarðvík með 22 stig, Dita Liepkalne bætti við 18 stigum og 13 fráköstum en Julia Demirer var með 10 stig og 11 fráköst. Ína María Einarsdóttir var stigahæst íslensku leikmanna liðsins með 9 stig.

Keflavík byrjaði vetur, komst í 9-4, 12-6 og 15-10 en var síðan bara 15-14 yfir eftir fyrsta leikhluta eftir að Njarðvík skoraði fjögur síðustu stigin í leikhlutanum.

Njarðvík skoraði 15 af fyrstu 19 stigum annars leikhlutans og komst tíu stigum yfir, 29-19, en Keflavíkurliðið svaraði með sjö stigum í röð og minnkaði muninn í 29-26. Njarðvík náði þá öðrum góðum kafla og var 39-30 yfir í hálfleik.

Njarðvík komst ellefu stigum yfir í upphafi seinni háfleiks, 41-30, og var með tíu stiga forskot, 45-35, þegar tvær og hálf mínúta var búin af hálfleiknum. Þá vaknaði Keflavíkurliðið heldur betur af værum blundi, skoraði 15 stig í röð á fjórum mínútum og komst yfir í 50-45.

Keflavíkurliðið komst mest átta stigum yfir, 55-47 en var síðan fjórum stigum yfir fyrir lokaleikhlutann, 58-54, eftir að Njarðvíkurliðið náði aðeins að minnka muninn aftur.

Lokaleikhlutinn var spennandi þótt að Keflavíkurliðið hafi alltaf verið með forustuna. Shayla Fields minnkaði muninn í 72-69 og fékk síðan tækifæri til að jafna metin en þriggja stiga skot hennar geigaði.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×