Lífið

Útgáfu flýtt um viku

Breska hljómsveitin The Vaccines, með bassaleikarann Árna Hjörvar Árnason innanborðs, hefur flýtt útgáfu á fyrstu plötu sinni um eina viku.

Platan, sem nefnist What Did You Expect From The Vaccines, kemur út 14. mars í staðinn fyrir 21. mars. Þar með er ljóst að hún kemur ekki út á sama tíma og nýjasta plata rokkaranna í The Strokes, Angles, sem The Vaccines hefur stundum verið líkt við.

Á meðal laga á plötu The Vaccines er hið vinsæla smáskífulag Post Break-Up Sex, sem sjá má myndbandið við hér fyrir ofan. Einnig Wreckin"Bar (Ra Ra Ra) og If You Wanna, sem verður næsta smáskífulag sveitarinnar.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×


Tarot dagsins

Dragðu spil og sjáðu hvaða spádóm það geymir.