Körfubolti

Grindavík og Keflavík áfram í bikarnum

Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar
Giordan Watson, leikmaður Grindavíkur.
Giordan Watson, leikmaður Grindavíkur. Mynd/Stefán
Öllum leikjum nema einum er lokið í 32-liða úrslitum Powerade-bikarkeppninnar í körfubolta en þrír fóru fram í kvöld.

Grindavík hafði betur gegn Haukum, 95-59, og ÍR vann Keflavík, 102-85, en um úrvalsdeildarslagi var að ræða. Þá vann KR léttan sigur á Mostra, 106-54.

Annars var lítið um óvænt úrslit í 32-liða úrslitunum sem lýkur með viðureign Vals og Snæfells í Vodafone-höllinni annað kvöld.

ÍR-ingar byrjuðu betur gegn Keflavík í kvöld og höfðu yfir í hálfleik, 46-41. En Keflvíkingar sigu fram úr í þriðja leikhluta og gerðu svo endanlega út um leikinn í þeim fjórða.

Charles Parker skoraði 27 stig fyrir Keflavík og Jarryd Cole 23 fyrir Keflavík. Hjá ÍR var Robert Jarvis stigahæstur með 20 stig og James Bartolotta kom næstur með nítján.

Giordan Watsons skoraði 24 stig fyrir Grindavík þar sem allir leikmenn sem spiluðu komust á blað. Davíð Páll Hermansson skoraði átján stig fyrir Hauka.

Úrslitin í 32-liða úrslit Powerade-bikarsins:

Víkingur Ó. - Þór Þorl. 52-120

Ármann - Skallagrímur 60-103

KR B - Höttur 80-81

Patrekur - Njarðvík B 69-87

ÍBV - Þór Ak. 47-153

ÍA - Fjölnir 68-86

Álftanes - Tindastóll 51-90

ÍG - Njarðvík 55-118

Mostri - KR 54-106

Haukar B - Breiðablik 62-78

Stjarnan B - Stjarnan 61-91

KFÍ - FSu 86-52

Reynir S. - Hamar 66-87

Grindavík-Haukar 95-59 (23-24, 29-8, 18-18, 25-9)

Grindavík: Giordan Watson 24/6 stoðsendingar, J'Nathan Bullock 20/13 fráköst, Ólafur Ólafsson 13, Ómar Örn Sævarsson 11/7 fráköst, Sigurður Gunnar Þorsteinsson 8/5 fráköst, Þorleifur Ólafsson 8/7 fráköst, Jón Axel Guðmundsson 3, Björn Steinar Brynjólfsson 3/5 fráköst, Einar Ómar Eyjólfsson 2, Jóhann Árni Ólafsson 2, Þorsteinn Finnbogason 1.

Haukar: Hayward Fain  18/8 fráköst, Christopher Smith 17/13 fráköst, Emil Barja 9, Sævar Ingi Haraldsson 5, Örn Sigurðarson 4, Alex Óli Ívarsson 2, Helgi Björn Einarsson 2/4 fráköst, Davíð Páll Hermannsson 2.

ÍR-Keflavík 85-102 (23-20, 23-21, 23-30, 16-31)

ÍR: Robert Jarvis 20, James Bartolotta 19/6 fráköst, Nemanja  Sovic 14/7 fráköst, Kristinn Jónasson 13/5 fráköst, Eiríkur Önundarson 7, Ellert Arnarson 7/5 fráköst, Hjalti Friðriksson 4, Níels Dungal 1.

Keflavík: Charles Michael Parker 27/5 fráköst, Jarryd Cole 23/4 fráköst, Steven Gerard Dagustino 16/5 fráköst, Valur Orri Valsson 15/4 fráköst, Almar Stefán Guðbrandsson 8/14 fráköst, Ragnar Gerald Albertsson 5/4 fráköst, Gunnar H. Stefánsson 3, Halldór Örn Halldórsson 3/6 fráköst, Andri Þór Skúlason 2.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×