Körfubolti

Einar Þór kominn í 1000 leiki

Kolbeinn Tumi Daðason skrifar
Einar Þór Skarphéðinsson í leik ÍR og Njarðvíkur á dögunum.
Einar Þór Skarphéðinsson í leik ÍR og Njarðvíkur á dögunum. Mynd/Valli
Körfuknattleiksdómarinn Einar Þór Skarphéðinsson úr Borgarnesi dæmdi á laugardag sinn 1000 körfuboltaleik þegar Snæfell lagði Val í Iceland Express-deild kvenna.

„Maður er kominn í hóp góðra útvaldra," sagði Einar Þór þegar blaðamaður heyrði í honum hljóðið. Einar Þór grínaðist með að samkvæmt eigin talningu hefði hann dæmt 1000 leikinn á föstudaginn þegar ÍA mætti Hamri. Samkvæmt opinberum tölum hefði hann þó náð áfanganum í gær og taldi hann best að miða við þann leik.

Einar Þór sagði hafa gengið vel að dæma 1000 leikinn en sagðist hafa lent í ýmsum ævintýrum í dómgæslu, jafnt góðum sem slæmum á ferlinum. „Það er samt þannig að jákvæðu minningarnar sitja eftir."

Aðspurður um breytingar sem hafa orðið í dómgæslu síðan hann byrjaði að dæma árið 1988 nefnir hann fagmennsku.

„Fagmennska er á mjög háu stigi, mun hærra en fólk gerir sér grein fyrir. Við erum mjög sjálfsgagnrýnir, sitjum marga fundi á hverju ári þar sem farið er yfir hvað megi betur fara," segir Einar Þór og nefnir sérstaklega helgarfund á hverju hausti þar sem körfuboltadómarar rýna í reglubreytingar og áherslubreytingar fyrir komandi tímabil.

Einar Þór segir einnig körfuboltadómara vera í góðu formi.

„Þú líkir því ekkert saman við það sem var fyrir 20 árum. Í dag eru körfuboltadómarar íþróttamenn. Ég æfi fjórum sinnum í viku fyrir utan leiki," segir Einar Þór sem segist eiga nóg eftir í dómgæslunni.

„Við sem teljumst gömlu karlanir erum ekkert gamlir. Rétt skriðnir yfir fertugt og á besta aldri," segir Einar sem dæmdi í gær sinn þriðja leik á þremur dögum.

Í leiknum vann Skallagrímur sigur á Laugdælum í 1. deild kvenna en Einar þekkti samdómara sinn betur en flesta. Þorkell Már Einarsson, 16 ára sonur Einars, dæmdi með honum.

„Þetta er eitthvað sem hann tók upp hjá sjálfum sér. Honum var alls ekki ýtt út í þetta," segir Einar Þór léttur.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×