Finnur gerði þriggja ára samning við Fylki Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 23. nóvember 2011 13:16 Finnur Ólafsson í leik með ÍBV. Mynd/Anton
Miðjumaðurinn Finnur Ólafsson gekk í dag til liðs við Fylki í Pepsi-deildinni frá ÍBV. Gerði hann þriggja ára samning við félagið. Ásmundur Arnarsson tók við þjálfun Fylkis eftir tímabilið og vildi styrkja miðjuna hjá liðinu. „Það fór mikið af miðsvæðinu í sumar og við lögðum því mikla áherslu á að fá Finn. Við erum gríðarlega ánægðir með að þetta hafi gengið í gegn," sagði Ásmundur í samtali við Vísi. Finnur hefur verið hjá ÍBV undanfarin tvö ár eftir að hafa komið frá uppeldisfélagi sínu, HK. Hann átti enn eitt ár eftir af samningi sínum við Eyjamenn og þurfti því Fylkir að kaupa upp samninginn. „Það er kannski ekki endilega á mínum snærum að svara því hvernig það kom til en hluti af ástæðunni er að leikmaðurinn var að hugsa sér til hreyfings upp á land af persónulegum ástæðum," sagði Ásmundur. Ásmundur hefur verið duglegur að fá leikmenn til Fylkis að undanförnu en fyrir voru þeir Björgólfur Takefusa, Árni Freyr Guðnason og Magnús Þórir Matthíasson búnir að semja við félagið. „Mér líst mjög vel hópinn. Það er mikið af ungum og efnilegum strákum að koma upp og ég er ánægður með þá leikmenn sem við höfum fengið. En við misstum líka marga leikmenn og því hefur leikmannahópurinn breyst nokkuð mikið. Það gæti tekið tíma að púsla þessu öllu saman." Ásmundur sagði að félagið væri svo sem ekki með fleiri leikmenn í sigtinu eins og er, en þó væru 2-3 samningslausir leikmenn að æfa með liðinu þessa dagana. Einn þeirra er Kári Ársælsson, varnarmaður og fyrrum fyrirliði Breiðabliks.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Íslenski boltinn „Ein af verstu ákvörðunum sem ég hef séð“ Enski boltinn Sakaður um svindl eftir að hafa hlaupið hraðar en Bolt Sport Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Íslenski boltinn ÍA svarar: Allar frásagnir hafa fleiri en eina hlið Fótbolti Sjáðu tíu United-menn tapa fyrir Leeds Enski boltinn „Djöfull er íslenska þjóðin orðin geðveik“ Körfubolti „Ég sagði dómaranum frá því að hann togaði í hárið á mér“ Enski boltinn Rooney segir að Man City hafi sálfræðilegt tak á Arsenal Enski boltinn „Við verðum að muna að við erum Liverpool“ Enski boltinn Fleiri fréttir Arnar sleit sin í hné og bíður svara varðandi framhaldið Hjartað brotið, hent eins og hverri annarri kúkableyju Ekki tapað fyrir Keflavík í 24 leikjum í röð „Þetta er bara löglegt mark sem er tekið af KA“ Segir ekkert vit í afsökunum Valsmanna Sjáðu öll mörkin úr fyrstu umferð Bestu deildarinnar „Dreymdi að ég myndi skora tvö“ „Ef hann lítur á þetta sem leikaraskap þá er hann á rangri hillu“ Uppgjörið: Fram - ÍA 3-3 | Chopart bjargaði stigi eftir rússibanareið Uppgjörið: KA - Stjarnan 2-3 | Flugu heim með stigin þrjú eftir fjörugan leik „Gáfum ódýr mörk“ „Frammistaðan verðskuldaði klárlega stig“ Áttu flug beint eftir leik og komust ekki í viðtöl „Sviðskvíðinn hvarf aldrei hjá lærisveinum mínum“ „Fannst þeir ekki eiga séns í okkur hérna í seinni hálfleik“ Uppgjörið: Valur - Þór Ak. 1-2| Nýliðarnir sóttu þrjú stig á Hlíðarenda Uppgjörið: KR - Keflavík 3-2 | Alexander Rafn fullkomnaði endurkomu KR-liðsins Uppgjörið: ÍBV - FH 1-1 | Tryggði stig í fyrsta leik „Deildin aldrei verið sterkari en í ár“ Bikarmeistararnir áfram eftir danskt sigurmark í lokin „Ekki gott fyrir hin liðin“ „Verður þetta ekki bara geðveiki?“ Segir að Ekroth verði að gera betur Víkingar áttu að fá víti: „Þetta er hendi, það er bara klárt“ Sjáðu fyrstu mörk tímabilsins í Bestu deildinni Uppgjörið:Víkingur Reykjavík - Breiðablik 1-1| Besta deildin opnar með stórmeistarajafntefli Oliver sagður á leið til Keflavíkur „Alls ekki áhyggjuefni“ Fram og KR eiga léttustu byrjunina „Eitthvað sem gerist í hausnum á mönnum þegar þeir eru að verja titil“ Sjá meira