Bikar á loft upp á Skaga í gær - myndir Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 11. september 2011 09:00 Reynir Leósson, fyrirliði ÍA, með bikarinn í gær. Mynd/Guðmundur Bjarki Halldórsson
Skagamenn eru 1. deildarmeistarar í ár og þeir fengu bikarinn afhendan eftir 5-0 stórsigur á KA á Akranesi í gær. Skagamenn tryggðu sér sæti í Pepsi-deildinni fyrir 25 dögum og voru fyrir nokkru orðnir B-deildarmeistarar. Þetta er í þriðja sinn sem Skagamenn vinna B-deildina en þeir unnu hana einnig sumurin 1968 og 1991. Þá leið stuttur tími í að þeir unnu Íslandsbikarinn en ÍA vann hann 1970 á sínu öðru ári og árið 1992 varð félagið síðan fyrstu og einu nýliðarnir til að verða Íslandsmeistarar. Hjörtur Júlíus Hjartarson kom inn á sem varamaður á 58. mínútu í leiknum í gær og skoraði þrjú síðustu mörk Skagamanna í leiknum. Hjörtur hefur þar með skorað 15 mörk í 18 leikjum í 1. deildinni í sumar. Fannar Freyr Gíslason og Mark Doninger skoruðu tvö fyrstu mörk ÍA í leiknum. Skagamenn hafa unnið 16 af 21 leik sínum í 1. deildinni í sumar og hafa skorað í þeim 52 mörk gegn 13. ÍA vann 14 af 15 fyrstu leikjum sínum en gaf síðan aðeins eftir í næstu leikjum þegar úrvalsdeildarsætið var tryggt. Guðmundur Bjarki Halldórsson, ljósmyndari Fréttablaðsins og Vísis, var á leik ÍA og KA á Akranesvellinum í gær og náði þessum skemmtilegu myndum. Myndirnar má sjá í albúminu hér að neðan. Hægt er að sjá myndirnar stærri með því að smella á þær.
Íslenski boltinn Mest lesið Kane mætti en Blikar slógu út meistara Grindavíkur Körfubolti Hent út af fjölskyldunni og var á götunni í tvo daga Körfubolti Slógu íslensku dómararnir heimsmet? Körfubolti „Hann sagði já takk“ Fótbolti Arteta kenndi „jólatré“ Nottingham Forest um vandræðin Enski boltinn Sjötta lífveran nefnd eftir Lionel Messi Fótbolti Refsing Ronaldos opinberuð og hún er sérstök Fótbolti „Markmið að ná Íslandsmeistaratitli“ Sport Vill taka upp „Steindavísitölu“ í íslenskum íþróttum Sport Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Íslenski boltinn Fleiri fréttir Gummi Ben: Matthías aðstoðar Rúnar Pál í Stjörnunni Uppgjör: Fram-ÍA 2-4 | Tvö Skagamörk í uppbótartíma Uppgjörið: Stjarnan-Breiðablik 0-1 | Íslandsmeistarar þriðja árið í röð Titillinn undir: „Farið illa með okkur í sumar“ Kristinn kveður Breiðablik: „Hlutirnir fara ekki alltaf eins og maður sér þá fyrir sér“ Uppgjörið: FH - Þróttur 0-4 | Titilvonir FH-inga í tætlum Sjáðu mörkin: KR tryggði annað sætið og fallbaráttan tók óvænta stefnu FH-ingar biðla til bareigenda, presta og trúarleiðtoga Keflavík - KR 2-3 | Gabríel gulltryggði annað sæti Þór - Stjarnan 3-1 | Þórsarar fyrir ofan fallstrikið eftir frábæran sigur Fjölnir fær Ívar Ingimars til starfa Uppgjörið: Valur - KA 4-1 | Brekkan brött fyrir KA Gætu orðið meistarar eftir vinnu á mánudaginn Ólafur Ingi: „Mér skilst að hann hafi bara kýlt hann“ Sjáðu þegar allt sauð upp úr í Kópavogi og glæsimark Sveins Uppgjörið: Grindavík/Njarðvík - ÍBV 2-1| Grindavík/Njarðvík vann síðasta heimaleikinn á tímabilinu Uppgjörið: ÍBV - FH 3-1 | Tíu Eyjamenn náðu fyrsta sigri í þrjá mánuði Uppgjörið: Breiðablik - Víkingur 1-2 | Fjögur rauð í miklum hitaleik Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Bjarni Jó hættur Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Tekur ekki við fyrr en eftir tímabilið Guðmundur greindist með hjartasjúkdóm Rúnar Páll tekur við Stjörnunni á nýjan leik Koma Eiðs vendipunktur: „Hafa ofurtrú á því sem hann kemur fram með“ Lögðu til átta milljóna króna stofnframlag Sjáðu mörkin úr Víkinni og Höskuld halda vel upp á stóran áfanga Ósáttur við framkomu stuðningsmanna meðan hann fékk aðhlynningu „Ég veit alveg hvað í mér býr og ætla að sýna það“ Sjá meira