Níu stiga sigur á Dönum - Logi með 24 stig Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 25. júlí 2011 20:03 Logi Gunnarsson.
Íslenska körfuboltalandsliðið fagnaði sínum fyrsta sigri á NM og sínum fyrsta sigri undir stjórn Peter Öqvist þegar liðið vann níu stiga sigur á Dönum, 85-76, í kvöld á Norðurlandamótinu í Sundsvall. Logi Gunnarsson var stigahæstur í íslenska liðinu með 24 stig, Jakob Örn Sigurðarson skoraði 14 stig og Helgi Már Magnússon var með 13 stig. Hlynur Bæringsson var með 9 stig og 9 fráköst. Íslenska liðið byrjaði leikinn mjög vel og komst í 8-0 eftir tvær og hálfa mínútu en Danir voru fljótir að jafna leikinn í 10-10. Íslenska liðið var með frumkvæðið lengstum en þurfti þriggja stiga körfu frá Hauki Helga Pálssyni til að vera 21-19 eftir fyrsta leikhlutann. Jakob Örn Sigurðarson skoraði átta stiga í fyrsta leikhlutanum. Íslenska liðið var alltaf skrefinu á undan í öðrum leikhlutanum og var síðan sjö stigum yfir í hálfleik, 39-32, eftir að hafa skoraði fimm síðustu stig hálfleiksins. Jakob var kominn með tólf stig í hálfleik, Logi Gunnarsson skoraði 8 stig í fyrri hálfleik og Haukur Helgi Pálsson var með 6 stig. Íslenska liðið hélt uppteknum hætti í seinni hálfleik, skoraði 10 af fyrstu 12 stigum seinni hálfleiksins og komst mest fimmtán stigum yfir, 49-34. Danir náðu aðeins að laga stöðuna í framhaldinu en íslenska liðið var níu stigum yfir, 61-52, fyrir lokaleikhlutann. Danir minnkuðu muninn í sex stig., 63-57, í upphafi fjórða leikhluta en Peter Öqvist tók þá leikhlé og íslenska liðið skoraði næstu sex stig og komst tólf stigum yfir, 69-57. Danir ætluðu ekki að gefast upp og Peter tók annað leikhlé eftir sjö dönsk stig í röð en munurinn var þá aðeins fimm stig, 69-64. Íslenska landsliðið var sterkara á lokakaflanum og landaði að lokum níu stiga sigri. Logi Gunnarsson skoraði 11 af 24 stigum sínum í fjórða leikhlutanum og var langstigahæstur í íslenska liðinu.Ísland-Danmörk 85-76 (39-32)Stig Íslands: Logi Gunnarsson 24, Jakob Örn Sigurðarson 14, Helgi Már Magnússon 13, Hlynur Bæringsson 9 (9 fráköst), Pavel Ermolinskij 7 (7 fráköst, 4 stoðsendingar), Haukur Helgi Pálsson 7 (4 fráköst, 4 stoðsendingar), Hörður Axel Vilhjálmsson 6, Finnur Atli Magnússon 5.
Íslenski körfuboltinn Mest lesið Bein útsending: Bakgarðshlaupið í Heiðmörk Sport Veðmál systkina til lykta leitt: „Veit að ég mun aldrei tapa fyrir honum“ Sport Iðrast gjörða sinna: „Var klárlega rangt af mér“ Íslenski boltinn Bað börnin sín afsökunar á dánarbeðinum Fótbolti Pössuðu að leikmenn Fulham væru aldrei einar með Al Fayed Enski boltinn UEFA sé að missa þolinmæðina gagnvart Íslandi Íslenski boltinn „Hún reif í mig og hraunaði yfir mig, á Marilegan hátt“ Sport Stöðvuðu bardaga Valgerðar Sport Segir að Rashford hafi tekið lífsstílinn í gegn Enski boltinn Sló 24 ára gamalt met Kára Steins, aftur Sport Fleiri fréttir Woj-fréttin hættir hjá ESPN og snýr sér að öðru Bikarnum úthýst úr Höllinni: „Svekkt en skiljum ákvörðunina“ Martin gerður að fyrirliða Alba Berlin Áhorfspartí á Íslandi vekur athygli Boban kveður NBA og fer til Tyrklands Fjöldi íslenskra kvenna sá Caitlin Clark setja stigamet „Sem samfélag erum við að vakna“ Færir sig á milli liða á Suðurlandinu Njarðvík fær tvo Valin best þriðju vikuna í röð Gamli Boston Celtics miðherjinn segir að Jordan hafi aldrei unnið nein góð lið KR fær króatískan miðherja Keyrði niður körfuboltamann sem lést Frákastadrottningin spilar ekki meira á þessari leiktíð Sá besti í Lettlandi semur við KR Barkley hneykslast á smásálarlegum konum í kringum WNBA „Það verður ný og skrýtin tilfinning“ „Markmið hjá okkur að fá til okkar uppalda KR-inga“ Þórir mættur heim í KR Curry fær meira en átta milljarða fyrir eitt tímabil „Ég gæti auðveldlega verið dauður“ Setti enn eitt metið í nótt Nýr Þórsari kynntur: „Hann kemur frá Cleveland líkt og Lebron James“ Skýtur af lengra færi en bestu NBA strákarnir Vonarstjarna ÍR til Bandaríkjanna Morris spilar með Grindavík í vetur Golden State hetjan Al Attles látin Frábærir þrír leikhlutar ekki nóg á móti Bretum Kallaði Kevin Durant veikgeðja Lykilmenn Íslandsmeistaranna framlengja samninga sína Sjá meira