Lochte bætti eigið heimsmet og hafði betur gegn Phelps Sigurður Elvar Þórólfsson skrifar 28. júlí 2011 12:45 Bandaríkjamaðurinn Ryan Lochte fagnaði sigri í 200 metra fjórsundi á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Sjanghæ í Kína og setti Lochte jafnframt heimsmet í greininni. AFP
Bandaríkjamaðurinn Ryan Lochte fagnaði sigri í 200 metra fjórsundi á heimsmeistaramótinu sem fram fer í Sjanghæ í Kína og setti Lochte jafnframt heimsmet í greininni. Landi hans, Michael Phelps, varð að sætta sig við annað sætið en þetta er fyrsta heimsmetið sem fellur á HM og kemur það ekki fyrr en á fimmta keppnisdegi. Lochte kom í mark á 1.54.00 mínútum og bætti eigið heimsmet um 0,14 sekúndur. Phelps var 0,16 sekúndum á eftir Lochte, Laszlo Cseh frá Ungverjalandi varð þriðji. Athygli vekur að þetta er fyrsta heimsmetið sem fellur í keppni í 50 metra laug í karlaflokki frá árinu 2009 þegar nánast öll heimsmet voru bætt á HM í Róm. Nýjar reglur um keppnissundfatnað sem tóku gildi í byrjun árs 2010 hafa gert það verkum að heimsmetin sem sett voru á árunum 2008-2009 virðast ætla að standast tímans tönn. Elsta heimsmetið í karlaflokki er frá árinu 2001 í 1.500 metra skriðsundi.
Erlendar Mest lesið Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Enski boltinn Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins Enski boltinn Sjáðu skelfileg meiðsli Jalen Williams Körfubolti „Ég skil ekki af hverju þetta er ekki ofar“ Körfubolti Ræddu bann Veigars: „Hræðilegur tími“ en „heppinn með dóminn“ Körfubolti Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Körfubolti Vakinn með símtölum um miðja nótt: „Lenti í hakkavélinni“ Íslenski boltinn Man. United-stuðningsmaðurinn með hárið algjörlega búinn á því Enski boltinn KR á nú tvo yngstu markaskorara sögunnar Íslenski boltinn Lofsyngur Frey og Alfreð: „Mesta umbreyting síðari tíma“ Fótbolti Fleiri fréttir Hjartnæm ræða Putellas: „Ekki hlusta ef einhver segir að þú getir þetta ekki“ Raddlaus eftir kraftaverk: Sáum Grimsby slá út Man. Utd og vildum gera eins „Mér finnst þessi ruðningslína leiðinleg“ Arsenal úr leik eftir tap gegn D-deildarliði Bikar-Ísak skoraði í stórsigri Uppgjörið: Keflavík - Stjarnan 72-92| Stjarnan heldur áfram að heilla „Getum gert stórkostlega hluti ef við höldum áfram að vera einbeittar“ „Sigurinn nærir“ Uppgjörið: Selfoss - Fram 29-35 | Fram hafði betur í botnslagnum Haukar völtuðu yfir KR og Ármann hrekkti meistarana Arnór með ellefu og Valsmenn nálgast toppinn „Hún gæti orðið okkar langbesti leikmaður“ Strax aftur á sigurbraut Stöðvaði leik í drjúga stund vegna drónaflugs Sjáðu mark Júlíusar sem uppskar stig Fyrsta mark Mussolini og lið Alberts á toppnum Sendi Haaland og fleiri í frí Biður kínversku þjóðina afsökunar Vikings er eina ósigraða liðið Breytingar boðaðar í Garðabæ Davíð Smári hættur hjá Njarðvík Jökull sagður á leið til Blika sem standa á tímamótum Rúnar Páll kynnti teymið sitt Framherjarnir þurfi að stíga upp Gæti farið í sex leikja bann Veigar opnar sig um lyfjamálið: „Ég var ekkert að fela neitt“ Kínverjar æfir yfir Maó-gríni Mbappé sem kostar hann milljónir Ólafur Ingi hættur með Blika Drottningin í fámennan hóp Ringulreið og fjöldaslagsmál eftir stórleikinn Sjá meira