Körfubolti

Þjálfari Sundsvall þjálfar íslenska körfuboltalandsliðið

Peter Öqvist.
Peter Öqvist. Mynd/Valli
KKÍ hefur ráðið þjálfara á A-landslið karla til ársins 2013 en næsti þjálfari A-landsliðs karla verður Peter Öqvist sem í dag er þjálfari Sundsvall í Svíþjóð. Þetta kemur fram í fréttatilkynningu frá KKÍ.

Peter er 35 ára og hefur bæði menntun og mikla reynslu sem þjálfari en hann hóf mjög ungur að þjálfa.

Peter var í þjálfarateymi yngri landsliða og U-20 ára landsliðs Svía á árunum 2002 - 2006

Peter hefur verið aðalþjálfari Sundsvall síðustu 6 ár og þar á undan var hann aðstoðarþjálfari liðsins í tvö tímabil.

Á þessum árum hefur Sundsvall verið í fremstu röð og m.a. unnið nokkra deildarmeistaratitla, meistaratitilinn 2009 og í nokkur skipti leikið til úrslita. Þegar þetta er ritað er liðið í harðri baráttu um sænska meistaratitilinn.

Peter þekkir ágætlega til körfuboltans á Íslandi en með Sundsvall leika þeir Jakob Sigurðarson og Hlynur Bæringsson en auk þeirra leika Logi Gunnarsson og Helgi Magnússon í Svíþjóð. Einnig hefur Peter fylgst með yngri sem eldri landsliðum Íslands síðustu árin.

Peter til aðstoðar verða þeir Helgi Jónas Guðfinsson fyrrverandi landsliðsmaður og atvinnumaður og núverandi þjálfari Grindavíkur og Pétur Sigurðsson fyrrverandi leikmaður í efstu deild og nýráðinn þjálfari KFÍ.

Helgi Jónas kemur með víðtæka þekkingu sem fyrrverandi landsliðsmaður, atvinnumaður og þjálfari úr efstu deild. Einnig mun þekking og reynsla Helga á styrktar og hraðaþjálfun nýtast leikmönnum og liðinu.

Pétur Sigurðsson sem útskrifast sem íþróttafræðingur á næstunni hefur þjálfað yngri flokka og meistaraflokka og er nýráðinn þjálfari KFÍ á Ísafirði. Pétur mun m.a. sjá um úrvinnslu myndbanda af leikjum og greiningu á andstæðingum íslenska liðsins.

Norðurlandamót A-landsliða fer fram í Sundsvall heimavelli Peter, Jakobs og Hlyns dagana 23.–28. júlí.

Liðið mun svo einnig taka þátt í nýju fyrirkomulagi á Evrópukeppninni sem hefst 2012 en þá verður ekki leikið i A og B deild eins og undanfarin ár. Þau lið sem ekki fara sjálfkrafa í lokakeppnina í Slóveníu 2013 verður raðað í styrkleikaröð í riðla sem er svipað og gert er í knattspyrnunni. Það eru því vonir til þess að sterkar þjóðir komi til landsins á næstu árum. Það verður dregið í riðla í kringum næstu áramót.




Fleiri fréttir

Sjá meira


×