Skoðun

Kristján L. Möller: Bætum loftið með vistvænum samgöngum

Samgöngur og hvers kyns flutningar eru þau svið sem hafa einna mest áhrif á umhverfi okkar og eitt brýnasta verkefnið sem stjórnvöld hvar sem er í heiminum standa frammi fyrir er að draga úr losun gróðurhúsalofttegunda. Engin stjórnvöld eru undanskilin í því verkefni. Enginn einstaklingur er heldur undanskilinn. Í dag hefst átakið ,,Hjólað í vinnuna" og því kjörið að hrinda aðgerðum af stað.

Í samstarfsyfirlýsingu ríkisstjórnar Íslands er lögð áhersla á umhverfismál og við þurfum að skipa málum þannig að til dæmis iðnaður og flugstarfsemi standist kröfur um viðskiptakerfi ESB með losunarheimildir. Þetta á einnig við um sjávarútveg og aðrar samgöngugreinar. Í dag geta þeir starfsmenn samgönguráðuneytisins sem þess óska skrifað undir samgöngusamning við ráðuneytið. Tilgangurinn er að greiða fyrir því að starfsmenn nýti sér vistvænar samgöngur, gangi, hjóli eða noti almenningssamgöngur til að sækja vinnu. Þeir sem skuldbinda sig til þess afsala sér rétti til að fá greiddan bílastæðakostnað en fá þess í stað árlegan styrk vegna kostnaðar við árskort í strætó eða vegna hjólreiða eða göngu.

Með þessu móti sýnum við í verki vilja til framlags til að ná árangri í baráttunni fyrir betra loftslagi.

Þá vil ég nefna tilraunaverkefnið með repju sem orkugjafa hér á landi. Siglingastofnun hefur með rannsóknum sýnt fram á að unnt er að rækta hérlendis repju og framleiða úr henni olíu sem nota má á skipsvélar. Er talið að fá megi orkugjafa fyrir allt að 10% af eldsneyti skipaflotans. Okkur vantar aðeins herslumuninn til að unnt sé að hrinda þessu af stað. Mun ég fela starfshópi að útfæra hugmyndir um verkefnið og fjármögnun þess.

Hér að framan hef ég nefnt örfá atriði sem unnt er að hrinda í framkvæmd í þágu þess að bæta umhverfi okkar. Við þurfum að tileinka okkur þann hugsunarhátt sem margir hafa bent á að framlag okkar hvers og eins skiptir máli. Við eigum að hugsa hnattrænt og um leið að hegða okkur í samræmi við það og leggja fram okkar skerf hvar sem við erum.

Aðeins þannig næst árangur. Aðgerðir okkar hafa áhrif - við getum byrjað núna.

Höfundur er samgöngu- og sveitarstjórnarráðherra




Skoðun

Sjá meira


×