Skoðun

Nafli alheimsins

Guðmundur Andri Skúlason skrifar

Þau vöktu athygli, orð Péturs Blöndal alþingismanns, um að skuldarar sæju ekkert nema naflann á sjálfum sér.

Þetta er alveg rétt hjá Pétri og merkilegt að hann skuli loks sjá þetta. En það er ekki skrítið að við horfum bara á okkar eigin nafla því að í augum fjármagnseigenda virðist þetta vera nafli alheims. Og í þennan nafla á að sækja aukið rekstrarfé til fjárvana bankakerfis, aukna vexti til handa soltnum sparifjáreigendum og auknar tekjur til gjaldþrota ríkissjóðs.

Allar stoðir hins endurreista bankakerfis á að reisa og byggja úr kuskinu úr þessum áhorfða nafla lánþega.

Og ef við vogum okkur að spyrja hvort þetta sé ekki pínulítið óréttlátt, þá eru sendir út af örkinni sendisveinar á borð við Þórólf Matthíasson. Hans hlutverk er að skrifa lærðar greinar þess eðlis að verði á skuldara hlustað þá skapi það áður óþekkta stærð fjármagnsflutninga milli stétta. Orðrétt segir Þórólfur í grein sinni í Fréttablaðinu þann, 29. júní:

„Afleiðingar af dómi Hæstaréttar um lögmæti svokallaðra myntkörfulána hafa hlotið mikla athygli enda kann í þeim að felast flutningur hundraða milljarða króna milli einstaklinga í hagkerfinu."

Það er merkilegt að Þórólfur, Pétur og aðrir fjármagnsverðir, hafi nú af því stórar áhyggjur að einhver tilfærsla verði á fjármagni milli stétta. Ekki heyrðist mikið í þeim þegar vel á annað þúsund milljarðar voru með einni löglausri tilskipun fluttir úr vasa skuldugra skattgreiðenda í vasa þessara sömu fjármagnseigenda og nú má ekki hreyfa við.

Og öllum tillögum undirritaðs um að kannski væri nú rétt að skattleggja þá gjafagjörninga er sópað undir borð með þeim orðum að þessi Samtök lánþega séu nú ekkert sérlega ekta.

Annað sem er merkilegt við afstöðu fjármagnsvarða er að þegar ríkissjóður lánaði tveimur einkafyrirtækjum tugi milljarða óverðtryggt á 2% vöxtum, þá var það bara allt í lagi. Einkafyrirtækin þökkuðu fyrir sig með því að eignfæra í bókum sínum mismun á markaðsvöxtum og þessum gjafavöxtum. Síðan var sú eign veðsett.

Ef við aftur á móti, skuldugir borgarar, gerumst svo frakkir að krefja fjármálafyrirtækin um að orð og samningar skuli standa þá stekkur sjálfur efnahags- og viðskiptaráðherrann upp á hæsta stólinn í ráðuneytinu og byrjar að tala um réttlæti. Segir að í því felist hróplegt ranglæti ef umsamdir samningsvextir standi eftir þegar búið er að dæma gengistryggingu ólögmæta.

Ég bara verð að viðurkenna að ég skil ekki af hverju það er óréttlátt að lánþegar greiði fjármálafyrirtækjum til baka umsaminn höfuðstól á umsömdum samningsvöxtum. En á sama tíma sé í lagi að almenningur láni þessum sömu fyrirtækjum tugi milljarða á óverðtryggðum 2% vöxtum.

Það er því ekki skrítið að við horfum stanslaust í eigin nafla Pétur. Við erum nefnilega að leita að öllum þessum peningum sem þú og þínir líkar sjáið endalaust þarna.










Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×