Jónatan: Sóknarleikurinn verður fallegur í úrslitakeppninni Hjalti Þór Hreinsson skrifar 22. febrúar 2010 21:49 „
Síðasta heimaleik unnum við með þrettán mörkum og við heyrðum það á fólki að þetta hefði ekki verið nógu gaman. Við ákváðum því að hugsa um skemmtanagildið fyrir áhorfendur í kvöld," gantaðist Jónatan Magnússon, fyrirliði Akureyrar eftir sigurinn á Fram í kvöld. Eins og nánast alltaf er rætt um var Akureyri með gott forskot sem það lét af hendi en það kom þó ekki að sök í kvöld. Nú var liðið með sex marka forystu þegar fimmtán mínútur lifðu leiks en Fram minnkaði muninn í tvö mörk. Sigurinn var þó á endanum öruggur, 28-25 voru lokatölur. „Við vorum eiginlega pínulítið búnir að gleyma hvernig á að klára leikina. Við vitum ekkert hvað er að gerast. Við kláruðum þetta í restina eftir atlögu þeirra að okkur. Við svöruðum fyrir okkur og þetta var nokkuð öruggt í lokin." „Þetta var lykilleikur fyrir okkur. Við eigum HK næst sem er annar lykilleikur fyrir toppbaráttuna."Fannst þér liðið spila vel í þessum leik? „Vörnin var ágæt lengst af og markvarslan fín allan tímann. Það komu slæmir kaflar en þetta var nóg í kvöld. Heilt yfir var þetta ekkert spes en þetta var vinnusigur. Við eigum nokkra leikmenn inni." „Við erum bara þannig lið að við vinnum leikina á vörn og markvörslu. Sóknarleikurinn er ekki fallegur, við vitum það, en hún verður falleg í úrslitakeppninni ef við komumst þangað," sagði brosmildur Jónatan sem átti ágætan leik í kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Róbert Orri með sjálfsmark ársins: „Fáránlegt atvik“ Fótbolti „Aumkunarvert að tala um það jákvæða eftir 5-0 tap“ Fótbolti „Gaman að vera ekki aumingi“ Körfubolti „Ég er ekki búinn að mæta á æfingu í þrjár vikur“ Körfubolti Söguleg frammistaða Júlíu og Manuels skilaði þeim á EM Sport Spilar heima á Tenerife í kvöld og bað um 45 miða Fótbolti Man. Utd reynir við rándýra ungstirnið sem Amorim leyfði að blómstra Enski boltinn Basile verið kallaður röngu nafni í fjögur ár Sport Mætti með myndabók af íslensku leikmönnunum á flugvöllinn Fótbolti Þrumuskalli Glódísar kom Bæjurum á bragðið Fótbolti Fleiri fréttir KA sótti sigur á Ísafjörð og Stjarnan þurfti framlengingu Haukar áfram eftir spennuleik Haukar hentu Eyjamönnum út úr bikarnum Lærisveinar Rúnars með góðan sigur Orri Freyr og félagar áfram á toppnum Íslendingarnir áfram á toppnum eftir sigur á Magdeburg Öruggt hjá liði Díönu Daggar og Andreu í Evrópuslag Íslendingaliðanna Góður endasprettur tryggði Haukum fína stöðu Pick Szeged hafði betur í toppslag Íslendingaliðanna Þorsteinn Leó markahæstur og stórsigur hjá strákunum hans Gumma Frækinn sigur Vals í Kristianstad Reynslubolti skilin eftir heima: „Niðurbrotin“ Lauflétt hjá Valsmönnum sem hoppuðu upp í þriðja sætið Kristján öflugur í sigri í Íslendingaslag Tólfti sigurinn í röð hjá Stiven og félögum Guðjón Valur framlengir við Gummersbach Elliði segir HM ekki í hættu Mosfellingar í vandræðum í Grafarvogi en redduðu sér í lokin Anna Karólína varði þrjú víti en það dugði ekki til Guðjón Valur án Íslendinga en áfram í bikarnum Uppgjörið: Grótta - Haukar 25-42 | Haukar kjöldrógu Gróttu FH-ingar í fínum gír án Arons „Enn sáttari með að allir leikmenn fari heilir inn í þetta jólafrí” Embla tryggði Stjörnunni sigur Rúnar frábær í sigri á gamla heimavelli sínum í Eyjum Íslendingalið í bikarúrslit í Noregi en aðeins eitt áfram í þýska bikarnum Uppgjör og viðtöl: Haukar - Fram 20-28 | Sannfærandi sigur Fram Einar Bragi öflugur í stórsigri Kristianstad Þórey Anna minnti á sig í 35. sigri Valskvenna í röð Er HSÍ í samstarfi við Adidas eða ekki? Sjá meira