Ný félagasamtök eru ekki til höfuðs KSÍ Hans Steinar Bjarnason skrifar 15. desember 2010 18:45
Knattspyrnufélög á Íslandi afla of lágra tekna til að standa undir rekstri. Samtök sem vinna að aukinni tekjumyndun taka til starfa á næstu dögum. Fréttatíminn greindi frá því fyrir helgi að í burðarliðnum sé stofnun samtaka sem eiga meðal annars að beita sér í baráttu við KSÍ um aukið fjármagn. Í öllum norðurlöndunum eru starfrækt samtök eða fyrirtæki í kringum úrvalsdeildirnar sem gefa félögunum meiri tekjur. Í Noregi standa slík samtök fyrir deildarkeppninni í náinni samvinnu við knattspyrnusambandið. Formenn knattspyrnudeilda félaga í Pepsídeild karla hafa undanfarið lagt grunninn að stofnun slíkra samtaka hér á landi sem myndu vinna í samræmi við þær aðstæður sem hér eru. Undirbúningurinn er á lokastigi og er vonast til að samtökin geti hafið formlega starfsemi í janúar. Hingað til lands hefur komið framkvæmdastjóri félagasamtakanna í Noregi og er það skoðun hans að tilvist þeirra hafi komið bæði félögunum og norska knattspyrnusambandinu til góða. Jón Rúnar Halldórsson, formaður félags knattspyrnufélaga í Pepsídeildinni, segir samtökin ekki sett á laggirnar til höfuðs KSÍ heldur til að auka nálægð félaganna við sambandið. Hann segir félög í öllum deildum njóta góðs af samtökunum, ekki bara í Pepsídeildinni. Jón Rúnar segir rekstur knattspyrnufélaga hér á landi mjög þungan og bendir á að KSÍ geti hagað tekjuskiptingu milli þeirra á annan hátt. Það væri til dæmis eðlilegt ef félögin yrðu með í ráðum við gerð styrktarsamninga KSÍ og sölu á sjónvarpsrétti fyrir Pepsídeildina sem hingað til hefur eingöngu hefur verið í höndum KSÍ.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Rúllaði um gólfið í fanginu á dómaranum Körfubolti 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Íslenski boltinn Biðlar til lýsenda sonar síns vegna Enski boltinn Gaf heila eiginmannsins og hann var með CTE Sport Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur Íslenski boltinn Fjórtán ára þjóðhetja eftir að hann stal miða eins besta markvarðar heims Fótbolti Metfjöldi norrænna kylfinga á Masters og Ísland gæti bæst í hópinn Golf Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla Íslenski boltinn „Í hausnum á mér er ég orðinn þessi maður“ Sport Wirtz segir Van Dijk hafa haft rangt fyrir sér Fótbolti Fleiri fréttir Víkingar efstir en Þórsarar neðstir í spánni 76 prósent leikmanna kjósa Miðflokk eða Sjálfstæðisflokk Svona var kynningarfundur Bestu deildar karla „KR er ekkert að fara að slaka á og vera varfærnir“ Besta-spáin 2026: Enginn afsláttur „Áður en ég hætti var Gísli á leiðinni í Breiðablik“ „Dreymir að minnsta kosti um Evrópu“ Besta-spáin 2026: Vöðvarnir hnyklaðir Sérfræðingarnir svara: Albert synti gegn straumnum Keflvíkingur keppti í Squid Game KR - Valur 4-2 | Síst of stór sigur og KR áfram Þroskamerki fyrir KR: „Það sem hefur vantað er andlegur styrkur „Það er ekki afsökun heldur staðreynd“ Óskar forviða á fullyrðingu Hödda Magg: Á yngsta barnið að borða úti á svölum? Varla spilað fótbolta í fjögur ár en skaut Gróttu áfram Damir skaut Grindvíkinga áfram í vítakeppni Viktor í stuði á Skaganum og dramatík í Egilshöll Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Sjá meira