Gaf heila eiginmannsins og hann var með CTE Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 8. apríl 2026 06:40 Steve McMichael á dögum sínum sem aðalstjarnan í varnarlínu Chicago Bears. Getty/ Jonathan Daniel Chicago Bears-goðsögnin Steve McMichael var greindur með CTE ári eftir andlát sitt.
McMichael, sem var tekinn inn í frægðarhöllina og var lykilmaður í yfirburðavörn Chicago Bears sem vann Super Bowl árið 1985, var með langvinnan áverkaheilakvilla (CTE), að sögn Concussion & CTE Foundation. Hall of Famer Steve McMichael, a key member of the dominating defense that helped the 1985 Bears win the Super Bowl, has been diagnosed with chronic traumatic encephalopathy, the Concussion & CTE Foundation said.More via @AP:https://t.co/RpbNC9SNcF— Adam Schefter (@AdamSchefter) April 7, 2026 McMichael lést á síðasta ári, aðeins 67 ára að aldri, eftir fimm ára baráttu við ALS, almennt þekktan sem Lou Gehrig-sjúkdóminn. Gaf heila Steve til rannsókna „Of margir NFL-leikmenn fá ALS á lífsleiðinni og eru greindir með CTE eftir dauðann,“ sagði eiginkona hans, Misty McMichael, í yfirlýsingu sem stofnunin gaf út. „Ég gaf heila Steve til að hvetja til nýrra rannsókna á tengslum þessara sjúkdóma.“ CTE er hrörnunarsjúkdómur í heila sem hefur fundist hjá íþróttafólki í snertiíþróttum, hermönnum og öðrum sem verða fyrir endurteknum höfuðhöggum. Vitað er að sjúkdómurinn getur valdið ofsafengnum skapsveiflum, hvatvísri hegðun og þunglyndi. Aðeins er hægt að greina hann eftir dauða. Samkvæmt rannsókn frá 2021 hjá Harvard Medical School og Boston University CTE Center eru NFL-leikmenn meira en fjórum sinnum líklegri til að fá ALS en aðrir karlmenn. „Það eru sterkar vísbendingar sem tengja endurtekin heilaáföll og ALS,“ sagði Dr. Ann McKee, forstöðumaður Boston University CTE Center. Tekinn inn í heiðurshöllina fyrir tveinur árum McMichael var tvívegis valinn í úrvalslið tímabilsins og tekinn inn í heiðurshöll ameríska fótboltans árið 2024. Hann var þekktur sem „Mongo“ og „Ming The Merciless“ á meðan hann spilaði metfjölda leikja fyrir félagið, 191 leik í röð frá 1981–93. Hann er í öðru sæti á eftir Richard Dent á lista Bears yfir flestar leikmannafellingar á ferlinum með 92,5.' Super Bowl champion and NFL legend Steve McMichael is diagnosed with CTE a year after his death at the age of 67 https://t.co/fwivW3sSPY— Daily Mail Sport (@MailSport) April 7, 2026 McMichael lék sitt síðasta tímabil í NFL-deildinni með Green Bay árið 1994 og hóf síðan feril í atvinnuglímu. Árið 2021 greindi McMichael frá því að hann væri að berjast við ALS, sem hefur áhrif á taugafrumur í heila og mænu og veldur tapi á vöðvastjórn. Hann fylgdist með rannsóknum sem leituðu að tengslum milli ALS og CTE og hét því að gefa heilann sinn til rannsókna, að sögn Chris Nowinski, meðstofnanda og forstjóra Concussion & CTE Foundation. Síðasta verkið að gefa hluta af sjálfum sér „Steve McMichael var þekktur fyrir styrk sinn, hörku og yfirþyrmandi nærveru, en hans síðasta verk var að gefa hluta af sjálfum sér aftur til íþróttasamfélagsins svo við gætum átt möguleika á að bjarga okkur sjálfum,“ sagði Nowinski. „Ég kann að meta alla fyrrverandi íþróttamenn, þar á meðal marga af liðsfélögum Steve úr '85 Bears-liðinu, sem safna fé og bjóða sig fram til að taka þátt í CTE-rannsóknum svo við getum skapað bjartari framtíð fyrir íþróttafólk alls staðar.“ "That's you baby, forever."Steve McMichael, who was diagnosed with ALS in 2021, is officially inducted into the Pro Football Hall of Fame surrounded by loved ones ❤️ pic.twitter.com/9cDqUmhyiZ— ESPN (@espn) August 3, 2024
NFL Mest lesið Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Sport Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Íslenski boltinn Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Enski boltinn Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Fótbolti Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Körfubolti Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sport Segir félagið í skítnum Enski boltinn Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Formúla 1 Piers Morgan baunar á Carragher Enski boltinn Fyrstur síðan David Robinson var og hét Körfubolti Fleiri fréttir Í hvínandi gír í Noregi Emelía og stöllur í góðum gír Segir félagið í skítnum Piers Morgan baunar á Carragher Fyrstur síðan David Robinson var og hét Klefinn þagnaði: „Eiginlega bara mjög óþægilegt“ Furða sig á því að Veigar megi ekki æfa: „Alveg fáránlegt“ Ætti oftar að brjóta rifbein: „Alveg að fara að hágráta en var líka skælbrosandi“ Dagskráin í dag: Risaleikur á Anfield og tímamót í Formúlu 1 Sjáðu mörkin og rauðu spjöldin: Skoraði sitjandi og neyðarlegt sjálfsmark Hamilton fremstur í fyrsta sinn í rúm þrjú ár Tvær tvennur þegar Börsungar tættu gestina í sig Bilun hjá Suzuki skipti sköpum Moreira stal senunni í slagnum um Mílanó og hélt Alberti á toppnum Sú belgíska lék ljótan leik en Víðir valdi Putellas og Rodri Íslendingarnir með sextíu prósent markanna Andreulegt upplegg í sigri Anderlecht Yfirburðir Hauka sem tapa ekki leik Dramatík í stórleiknum í Þýskalandi Tottenham án vandræða upp í efri hlutann Njarðvík sagði upp samningi við Smit Félag Örnu og Fanneyjar gat ekki borgað laun „Sóknarleikurinn vel smurður“ Raunamæddur Carrick neitaði að kenna Martínez um Freyr að eignast markakóng eftir enn einn sigurinn Brentford bjargaði United frá fallsæti Uppgjörið: Valur - Afturelding 40-37 | Valur gerði Aftureldingu grikk að Hlíðarenda Brighton í titilbaráttu eftir frábæran sigur á City Sveinbjörn Másson sæmdur silfurmerki KSÍ Góður sigur stráka Sigga Ragga í lokaleiknum Sjá meira