Rúnar Kristinsson: Við spiluðum eins og lagt var upp með Stefán Árni Pálsson skrifar 25. júlí 2010 23:07 Rúnar Kristinsson, þjálfari KR-inga. Mynd/Valli
Rúnar Kristinsson, þjálfari KR-inga, var mjög svo ánægður með sína menn eftir að KR-ingar höfðu gjörsigrað Selfyssinga 3-0 í 13.umferð Pepsi-deildar karla í kvöld á Selfossi. „Ég er gríðarlega ánægður með hvað strákarnir lögðu sig mikið fram og spiluðu þann leik sem við lögum upp með," sagði Rúnar Kristinsson , nýráðinn þjálfari KR-inga, eftir leikinn í kvöld. „Selfyssingar byrjuðu leikinn mun betur fyrstu tíu mínúturnar er svo fannst mér við ná ágætis tökum á leiknum. Þeir voru alltaf hættulegir í sínum sóknaraðgerðum en við bara nýtum okkar færi og það lagði gruninn að sigrinum,"sagði Rúnar. „Við spilum einum færri í seinni hálfleiknum og fáum varla á okkur marktækifæri, ég get ekki farið fram á meira frá strákunum og er því virkilega ánægður með liðið eftir leikinn í kvöld,"sagði Rúnar. Það er ljóst að þjálfaraskiptin fara vel í KR-inga og allt annað að sjá til liðsins. „Ég hef mikla reynslu af því sjálfur sem leikmaður að þegar skipt er um þjálfara þá virkar það eins og vítamínssprauta á liðið, en það varir oft bara yfir í einn leik og því er það mitt hlutverk að brýna fyrir strákunum að halda áfram á þessari braut," sagði Rúnar. KR-ingar mæta Fram á fimmtudaginn í undanúrslitum Visa-bikarsins og leggst það verkefni vel í Rúnar. „Sú spilamennska sem ég sá frá liðinu í kvöld er frábært veganesti fyrir leikinn gegn Fram á fimmtudaginn, en Frammarar koma líka dýrvitlausir í leikinn eftir að hafa sigrað toppliðið í kvöld. Við erum að fara spila upp á það hverjir komast í skemmtilegasta leik sumarsins og því verður allt lagt undir og við ætlum okkur sigur, en við verðum að undirbúa okkur mjög vel," sagði Rúnar Kristinsson, þjálfari KR-inga, eftir sigurinn í kvöld.
Pepsi Max-deild karla Mest lesið Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn Íslenski boltinn Nokkrir tæpir í Grindavík sem „tala skít“ Körfubolti Cantona spreytir sig á íslenskunni Fótbolti „Á Ítalíu væri Yamal að spila í Serie B“ Fótbolti Bernardo Silva yfirgefur City: „Allar góðar sögur enda“ Enski boltinn Goðsögn hleður Guðjón Val og Gummersbach lofi Handbolti „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Íslenski boltinn Kraftaverkið í Barcelona: „Næst er ég undir öllu Haukaliðinu“ Handbolti Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Íslenski boltinn Van Dijk segir að Liverpool hafi gefist upp gegn City Enski boltinn Fleiri fréttir Leikmenn Hauka fastir í bænum og þjálfararnir á bekkinn „Þetta eru alltaf risastórir leikir“ „Finnst Valur ekki vera þannig klúbbur“ Besta-spáin 2026: Stórar spurningar Samvinna Emils og Birnis gerði gæfumuninn Reykjavíkurslagur KR og Vals færður inn í Egilshöll „Vonandi keppa þeir af alvöru um það að komast í topp þrjá“ Besta-spáin 2026: Skref fyrir skref Sérfræðingarnir svara: Hverjir valda mestum vonbrigðum í sumar? Markaveislan í bikarnum: Nýir menn stimpla sig rækilega inn „Menn hafa alltaf eitthvað að segja“ Kristófer með tvennu er Blikar flugu áfram í bikarnum Djuric skoraði er KA komst áfram í bikarnum Fram - Víkingur 2-4 | Svöruðu seinu jöfnunarmarki ógnarsnöggt Fjögurra marka svar FH-inga sem eru komnir áfram Þróttarar slógu Eyjamenn út úr bikarnum „Finnst vanta framherja“ Besta-spáin 2026: Vindar breytinga Ægir Jarl mættur til Fram Bikarævintýri Davíðs Smára halda áfram Afturelding áfram í sextán liða úrslit bikarsins Uppgjörið: Breiðablik - FH 3-1 | Breiðablik meistarar meistaranna „Ofboðslega stórir skór að fylla“ Besta-spáin 2026: Vilja segja upp áskriftinni Sérfræðingarnir svara: Telja að ungu KR-ingarnir slái í gegn Skoruðu í Reykjavík og unnu í Hafnarfirði Meistarakeppni kvenna í fótbolta aflýst vegna veðurs Flautað af í Árbæ vegna snjókomu Breiðablik - FH | Bikar í boði í meistarakeppninni „Ég er spenntur fyrir Þórsurum“ Sjá meira