2011, ár endurreisnar! Steingrímur J. Sigfússon skrifar 31. desember 2010 06:00 Hvar erum við sem þjóð á vegi stödd rúmum tveimur árum bak hruninu sem hér varð í október 2008? Óumdeilt er að við höfum glímt við mikla erfiðleika og hefur orðið heilmikið ágengt í að vinna okkur út úr þeim. Áfallið sem hér varð var af þvílíkri stærðargráðu að óraunsætt og barnalegt væri að ætla að allt væri komið í samt lag tveimur árum síðar enda er það auðvitað ekki svo. Fjórir fimmtu hlutar fjármálakerfisins fóru á hliðina, ofvaxinn bygginga- og mannvirkjageiri hrundi saman, þúsundir misstu vinnuna á örfáum mánuðum, skuldir hlóðust á ríkið, tekjur féllu og útgjöld jukust. Samanburður við það sem var á árunum um og fyrir 2007 er líka óraunhæfur því þá lifðum við sannarlega um efni fram, í bólu skuldsetningar og sýndarverðmæta. En, raunhagkerfið íslenska sem ekki hrundi hefur sannað styrk sinn og aðlögunarhæfni. Við áramót 2010 er staðan þessi: Ísland er löngu horfið af listum yfir þær þjóðir sem í mestri hættu eru taldar. Áhættuálagið á Ísland, sem fór yfir 1.000 punkta þegar verst lét eftir hrun, er nú komið niður í um 270 og fer lækkandi, er sem sagt orðið lægra en það var mánuðina fyrir hrunið 2008. Gengi krónunnar hefur styrkst umtalsvert á árinu og nú upp á síðkastið hefur Seðlabankinn hafið kaup gjaldeyris á markaði. Endurfjármögnun bankakerfis og sparisjóða er að mestu lokið og klárast það sem út af stendur væntanlega á allra næstu vikum. Vextir hafa lækkað skarpt eða úr 18% niður í 4,5%, til mikilla hagsbóta fyrir skuldsett heimili og atvinnulíf sem og þá sem hyggja á fjárfestingar. Vextir hér á landi eru nú á svipuðum slóðum og þeir voru á evrusvæðinu 2008. Verðbólga lækkaði jafnt og þétt og er nú í desember komin inn fyrir viðmiðunarmörk Seðlabankans (2,5%) í fyrsta sinn í 7 ár. Gripið hefur verið til umfangsmikilla aðgerða til að aðstoða heimili og fyrirtæki í skuldavanda. Munu yfir 60 þúsund heimili njóta góðs af aðgerðum ríkisstjórnarinnar. Munar þar ekki síst um hærri vaxtabætur og sérstaka vaxtaniðurgreiðslu sem munu nema í heild um 18 mia. kr. Árlegur heildarkostnaður heimila í landinu vegna vaxta og afborgana af húsnæðislánum er um 60 mia. kr. Til viðbótar þessu hafa fyrri úrræði verið verulega bætt, embætti umboðsmanns skuldara komið á fót og sú starfsemi verið stórefld. Samkomulag hefur tekist um að vinna hratt úr skuldavanda lítilla og meðalstórra fyrirtækja. Fjárlögin 2011 marka mikil tímamót í ríkisfjármálum. Án aðgerða áranna 2009-2011 hefði ríkissjóður stefnt í þrot vegna þess tekjufalls sem hann varð fyrir eftir hrun sem og þeirrar útgjaldaaukningar sem varð í formi stóraukins vaxtakostnaðar, aukins atvinnuleysis og margvíslegs herkostnaðar af völdum hrunsins. Þrátt fyrir mikinn niðurskurð hefur velferðarkerfið verið varið. Samdrátturinn í velferðarútgjöldunum á tveimur og hálfu ári er sennilega á bilinu 6-8% á meðan yfirstjórn og almennur rekstur er kominn í nálægt 20%. Samkvæmt fjárlögum næsta árs verður rétt tæplega 1% afgangur af frumjöfnuði í rekstri ríkisins (15,5 mia kr.). Gangi það eftir verður Ísland eitt af aðeins 8-10 OECD ríkjum sem ná jákvæðum frumjöfnuði á næsta ári. Fáir hefðu spáð að það tækist haustið 2008. Þessum árangri tókst að ná við lokaafgreiðslu fjárlaga þó verulega væri dregið úr niðurskurði, einkum til velferðarmála og sums staðar bætt við. Með fjárlögum ársins 2011 er stærstur hluti nauðsynlegrar aðlögunar ríkisfjármálanna að baki. Í ársbyrjun er fjórða endurskoðun efnahagsáætlunar íslenskra stjórnvalda og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins á dagskrá og mun marka tímamót. Með henni opnast aðgangur að síðasta hluta gjaldeyrislánanna og sér fyrir endann á áætluninni. Hagvöxtur og atvinnaHagvöxtur er talinn hafa verið 1,2% á þriðja ársfjórðungi þessa árs og allar hagspár gera nú ráð fyrir viðsnúningi hagkerfisins, þ.e. landið er að komast út úr kreppunni. Öll skilyrði eru til að fjárfestingar fari vaxandi á næsta ári. Lækkun vaxta og úrvinnsla á skuldum heimila og ekki síður lítilla og meðalstórra fyrirtækja munu hafa örvandi áhrif. Búast má við að á nýju ári fari ýmis atvinnuverkefni í gang sem sum hver hafa beðið í óvissu frá hruni en önnur eru nýrri af nálinni. Um leið og stöðugleika hefur verið náð og staða landsins og orðspor fer batnandi bíða tækifærin í röðum. Flest bendir til þess að metár sé í vændum í ferðaþjónustu, tækni- og þekkingargreinar og hinn skapandi geiri sækja fram. Glíman við að ná niður atvinnuleysi og áframhaldandi aðgerðir til að gera fjármál hins opinbera sjálfbær verða í forgangi næstu mánuði og misseri. Við erum á réttri leið, en glímunni er hvergi nærri lokið. Auðnist okkur að vinna áfram í sæmilegum friði að hinu gríðarlega mikilvæga verkefni, endurreisn landsins, þá eru okkur allir vegir færir Íslendingum. Góður vinnufriður og stöðugleiki, í efnahagsmálum, á vinnumarkaði og í stjórnmálum, er okkur áfram lífsnauðsynlegur. Það er í okkar höndum að gera árið 2011 að góðu ári, ári mikils umsnúnings til hins betra. Ég þakka Fréttablaðinu og lesendum þess samfylgdina á árinu og óska landsmönnum öllum gleðilegs nýs árs. Viltu birta grein á Vísi? Kynntu þér reglur ritstjórnar um skoðanagreinar. Senda grein Steingrímur J. Sigfússon Mest lesið Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold Skoðun Það vaknar enginn með sæstreng í bakgarðinum Jóna Þórey Pétursdóttir Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff Skoðun Amma og afi, plís ekki kjósa gegn okkur Hnikarr Bjarmi Franklínsson Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson Skoðun Skoðun Skoðun Stærsta lygin Sverrir Björnsson skrifar Skoðun Hver á þennan bústað, já eða nei? Sigþrúður Ármann skrifar Skoðun Stjórnum okkur sjálf og höfum áhrif í Evrópu Viktor Orri Valgarðsson skrifar Skoðun Hvers virði er velvild Trump? Paal Frisvold skrifar Skoðun Lýðræðisveislan 2026 Birgir Björn Sigurjónsson skrifar Skoðun Ungum Íslendingum er betur borgið utan ESB Jón Gunnar Jónsson skrifar Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar Skoðun Veistu hvaða sírenur syngja til þín? Vilbert Gústafsson skrifar Skoðun Það er sitthvað bogið við banana Eggert Gunnarsson skrifar Skoðun Já fyrir íslenskuna! Logi Einarsson skrifar Skoðun Segðu ekki nei, segðu kannski, kannski, kannski Hólmar Örn Finnsson skrifar Skoðun Hverjum treystir þú? María Rut Kristinsdóttir skrifar Skoðun Spænskir strandveiðisjómenn til Íslands Bergþór Ólason skrifar Skoðun Ryksugan hans Halldórs Svanhvít Aðalsteinsdóttir skrifar Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar Skoðun Barist fyrir veröld sem var Elías Þórsson skrifar Skoðun Við höfum tekið margar góðar ákvarðanir Hjörtur J. Guðmundsson skrifar Skoðun Kjósum með opnum huga Kristín A. Árnadóttir skrifar Skoðun Um Kanada og Ísland Eliza Reid skrifar Skoðun Frístundamiðstöðvar lagðar niður, á hverjum bitnar það? Sigrún Ósk Arnardóttir skrifar Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar Skoðun The EU Referendum Dorrit Moussaieff skrifar Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar Skoðun Fullveldi er ekki stofustáss María Kristín Gylfadóttir skrifar Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar Skoðun Á matur að vera ódýr? Sæmundur Jón Jónsson skrifar Skoðun Baráttan um Ísland Lúðvík Bergvinsson skrifar Skoðun Verum ekki lítil - Ákall til ungu kynslóðarinnar Kristrún Ágústsdóttir skrifar Skoðun Af hverju þarf þolandinn alltaf að færa sig? Valerio Gargiulo skrifar Skoðun Er erfitt að taka ákvörðun? Eiríkur Björn Björgvinsson skrifar Sjá meira
Skoðun Hvaða dyr viljum við hafa opnar? Reynsla Spánar og Portúgals Anna Margrét Bjarnadóttir skrifar
Skoðun Evrópusambandið byggir ekki á því að aðildarríkin séu sammála. Þvert á móti Martha Árnadóttir skrifar
Skoðun Þegar síminn víkur fær leikurinn meira pláss Vala Steinsdóttir,Kristín Ólöf Grétarsdóttir skrifar
Skoðun Lokum ekki augunum fyrir tækifærum – segjum já og sjáum samninginn Árni Rúnar Þorvaldsson skrifar
Skoðun Þarf kerfi sem er sjálft búið að greina skort á samfellu rof á samfellu meðan verið er að laga skort á samfellu? Spyr amma Kristín Ólafsdóttir skrifar