Haukar unnu níu marka stórsigur á FH í Krikanum Elvar Geir Magnússon skrifar 30. nóvember 2010 21:16 Þórður Rafn Guðmundsson skoraði átta mörk í kvöld.
Haukar jöfnuðu FH að stigum með því að vinna sigur í Hafnarfjarðarslagnum í Kaplakrika í kvöld, lokastaðan 16-25. Þeir lögðu grunninn að sigrinum með því að skora sjö mörk í röð í kringum hálfleikinn. Það var mikil stemning í Hafnarfirðinum í kvöld, áhorfendur sátu þétt saman og létu vel í sér heyra. FH skoraði tvö fyrstu mörk leiksins en Haukar náðu forystunni í fyrsta sinn með því að skora þrisvar í röð og staðan 4-5. Leikurinn var í járnum framan af fyrri hálfleik en í stöðunni 8-8 hrundi leikur heimamanna. Haukar komust yfir 15-8 þar sem miklu munaði um góð markvörslu Birkis Ívars Guðmundssonar. Þá vöknuðu FH-ingar aðeins til lífsins á ný og komu í veg fyrir að gestirnir myndu algjörlega stinga þá af strax. En Haukar voru með leikinn í öruggum höndum og unnu fyllilega verðskuldaðan sigur. Þórður Rafn Guðmundsson var markahæstur hjá Haukum með átta mörk og þeir Guðmundur Árni Ólafsson og Freyr Brynjarsson skoruðu fimm. Fyrir FH voru þeir Ásbjörn Friðriksson og Ólafur Guðmundsson með fjögur mörk hvor. Birkir Ívar Guðmundsson varði 20 skot hjá Haukum en hinumegin var Pálmar Pétursson með 13 skot varin. Frekari umfjöllun og viðtöl koma inn á Vísi seinna í kvöld.
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira