Vill halda í gamla stjórann 19. júní 2010 06:00 svein harald Norðmaðurinn var seðlabankastjóri hér frá febrúarlokum og fram í ágúst í fyrra.Fréttablaðið/Anton
Svein Harald Øygard er álitlegasti eftirmaður norska seðlabankastjórans. Þetta hefur norska dagblaðið Dagens Næringsliv eftir Svein Gjedrem, núverandi bankastjóra. Gjedrem hefur vermt bankastjórastólinn frá 1999 og rennur ráðningartími hans út um næstu áramót. Samkvæmt norskum lögum má hann ekki sitja lengur en tvö sex ára tímabil. Svein Harald þekkir norsku stjórnsýsluna og seðlabankann í þaula en hjá þeim báðum starfaði hann sleitulítið frá 1983 til 1995 þegar hann hóf störf hjá ráðgjafafyrirtækinu McKinsey. Þar var hann framkvæmdastjóri áður en hann tók við seðlabankastjórastólnum hér í byrjun síðasta árs. Svein Harald tók aftur við fyrri stöðu þegar hann sneri til Noregs á ný í fyrrahaust. Svein Harald vildi ekki tjá sig um málið í samtali við Fréttablaðið í gær. Hann sagði þetta vangaveltur í norskum fjölmiðlum og vísaði til umfjöllunar Dagens Næringsliv um málið. Í blaðinu er haft eftir honum að Gjedrem hafi verið framúrskarandi bankastjóri sem alþjóðasamfélagið taki mark á. Norska ríkisstjórnin verði að breyta lögum og halda í Gjedrem. - jab
Fréttir Innlent Mest lesið Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Innlent Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Innlent Rússar segja Selenskí aumkunarverðan trúð Erlent Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Innlent „Algjört þjófstart á sumrinu“ Innlent Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Innlent Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Innlent Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Innlent Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Innlent Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Innlent Fleiri fréttir Logi fordæmir ummæli Jóns Gnarr um Vísi Vilja aðra tillögu í stað Völugötu sem átti að koma í stað Bjargargötu „Algjört þjófstart á sumrinu“ Úlfari var boðin staða lögreglustjóra á Austurlandi Yfirmaður herafla NATO á Íslandi Hestamenn láta tæpa hálfa milljón stöðva sig Inga Sæland hellti sér yfir Sigríði Andersen Lögreglustjórafélagið fjallar um starfslok Úlfars Enn þjarmað að Flokki fólksins vegna styrkjamálsins Hægir verulega á fjölgun erlendra ríkisborgara Borgin rukkar hestamenn og þeir hætta við reiðina Kaupa frekar gervigreindartónlist í þætti en frumsamið efni Laupur stelur senunni í Árbæjarlaug Bein útsending: Ísland og Norðurslóðir í nýjum heimi – Ógnir og öryggi, áskoranir og tækifæri Kona réðst á pizzusendil sem vildi fá símann sinn aftur Enn einn skjálftinn austan við Grímsey Vara við bikblæðingum á Bröttubrekku Flugleiðir á barmi gjaldþrots gátu ekki haldið Cargolux Verðhækkanir varpa skugga á grillsumarið mikla Isavia fær áheyrn um hvort reka hafi mátt mann vegna aldurs Laupur vekur mikla athygli sundlaugagesta í Árbæjarlaug Fórnuðu gömlu húsi fyrir slökkviliðsæfingu Telur líkur á að starfslok Úlfars tengist útlendingapólitík Ófremdarsástand og íbúum haldið í heljargreipum Leitar stolins bíls: „Eins og hann sé bara á rúntinum“ Sváfu úti á palli með barnið en fá húsið ekki bætt Ófremdarástand á Hverfisgötu og verðhækkanir á grillmat „Hann breytir börnunum okkar í nikótínþræla“ Þingmenn vilja vita meira um hvers vegna Úlfar hætti störfum Ferðamannarúta kyrrsett í aðgerðum lögreglu Sjá meira