Vilhelm Gauti: Aldrei spurning eftir að við smullum í gang í vörninni Óskar Ófeigur Jónsson skrifar 10. desember 2009 22:18 HK-ingurinn Vilhelm Gauti Bergsveinsson gefur ekkert eftir í vörninni. Mynd/Vilhelm
Vilhelm Gauti Bergsveinsson átti mjög flottan leik í HK-vörninni í sigrinum á Gróttu í kvöld og auk þess að verja sex skot í vörninni þá skoraði hann þrjú lagleg mörk þegar HK-ingar keyrðu yfir Seltirninga í seinni hálfleik. „Við vorum lengi í gang varnarlega. Eftir að við smullum í gang í vörninni þá held ég að þetta hafi aldrei verið spurning. Sóknarleikurinn var agaður og skynsamur og við stjórnuðum þessu eftir okkar höfði. Við einbeittum okkur í að spila handbolta í stað þess að tuða en Gróttuliðið datt svolítið í þann pakka þegar þeir lentu undir. Þetta var okkar dagur og ég er mjög ánægður með þetta," sagði Vilhelm. HK-vörnin var í mjög góðum gír þar sem Vilhelm Gauti og Bjarki Már Gunnarsson hleyptu fáu í gegn og flest allt sem slapp framhjá þeim varði Sveinbjörn í markinu. „Það eru allir leikmenn í liðinu með hlutverk, sóknar- eða varnarlega. Okkar hlutverk er að vera svolítið geðbilaðir í vörninni, svolítið ýktir til þess að fá menn með okkur. Það er kannski ekki eins áberandi en það eru allir að skila sér varnarlega. Það eru allir með hnefana á lofti og skila sínu. Við vorum kannski meira áberandi núna en það eru allir að standa saman. Mér lýst bara vel á þetta," sagði Vilhelm. HK-liðið lítur nú betur og betur út með hverjum leiknum. „Við duttum í gang og yfirspiluðum þá. Við erum vissulega á gólu róli en við þurfum að halda áfram að vinna í okkar leik. Við erum með ákveðna vinnu í gangi sem er innan liðsins. Hún er að skila okkur í stemmingu og í því að menn eru að leggja sig fram," sagði Vilhelm að lokum.
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Lætur Ingu Sæland heyra það: „Óboðlegt og frekar hrokafullt“ Sport Bjarni Jó hættur Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira