Aron: Ætlum að klára þetta í kvöld 5. maí 2009 13:02 Aron Kristjánsson Mynd/Stefán "
Við erum að fara í Valsheimilið til að vinna og ætlum að klára þetta," sagði Aron Kristjánsson þjálfari Hauka í samtali við Vísi þegar hann var spurður út í fjórða leikinn gegn Val í lokaúrslitum N1 deildarinnar í kvöld. Leikirnir þrír til þessa hafa unnist á heimavelli og því hafa Haukarnir 2-1 forystu í einvíginu og geta tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn með sigri í kvöld. "Það hefur verið nokkur munur á liðunum heima og úti en við náðum nú að koma þessu í framlengingu í síðasta leik. Við höfum verið ágætir á útivelli í vetur og markmiðið í kvöld er að vinna. Við hugsum aldrei um annað en það að klára næsta leik og það er það sem við höldum fast í," sagði Aron og ítrekar það sem hann sagði áður en einvígið hófst. "Ég sagði það fyrir þetta einvígi að liðið sem spilaði bestu vörnina og yrði með bestu markvörsluna myndi vinna þetta einvígi og hingað til höfum við verið í því hlutverki. Út frá varnarleiknum erum við að fá mörg góð hraðaupphlaup og það er rétta uppskriftin. Svo gekk sóknarleikurinn okkar betur í síðasta leik en í hinum tveimur og vonandi heldur það áfram," sagði Aron. Hann vill gjarnan klára einvígið í kvöld og forðast að þurfa að spila hreinan úrslitaleik. "Í slíkum leik getur allt gerst og úrslit ráðist á skoti sem fer í stöng og inn eða stöng og út. Svo geta leikmenn lent í veikindum og eitt og annað, þannig að menn verða að nýta hver tækifæri sem þeir fá til að klára þetta. Við munum reyna það í kvöld," sagði Aron. Leikurinn í kvöld hefst klukkan 20:15
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Kvaddi Val og sló í gegn eftir fullyrðingar um lélegt hugarfar Íslenski boltinn Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira