Björgvin hafnaði Hammarby og samdi við Hauka Henry Birgir Gunnarsson skrifar 2. júní 2009 09:49 Björgvin í leik með Stjörnunni gegn Haukum.
Handknattleikskappinn Björgvin Hólmgeirsson hefur yfirgefið herbúðir Stjörnunnar og gengið frá tveggja ára samningi við Íslandsmeistara Hauka. Skrifað var undir samninginn í gærkvöldi. Björgvin hafnaði á sama tíma spennandi samningstilboði frá sænska liðinu Hammarby sem Staffan Olsson þjálfar. „Þetta tilboð frá Hammarby var mjög spennandi en ég vil klára íþróttafræðina í háskólanum áður en ég fer út. Ég á bara eitt ár eftir og fannst gáfulegra að klára það áður en ég fer að reyna fyrir mér utan landsteinanna," segir Björgvin við Vísi í morgun. „Hammarby er spennandi lið. Flottir strákar sem eru allir á svipuðum aldri og ég og svo Staffan að þjálfa. Það hefði verið gaman að vinna með honum." Björgvin var sterklega orðaður við Hauka þegar hann fór til Stjörnunnar frá ÍR á sínum tíma. Hann segist ekki sjá eftir því að hafa farið til félagsins. „Ég átti mjög góða tíma í Stjörnunni. Það er því miður ekki eins mikið í gangi hjá félaginu núna og í Haukum og því ákvað ég að breyta til. Ég er spenntur fyrir því að byrja hjá Haukum," sagði Björgvin sem mun væntanlega leika sem miðjumaður hjá Haukum en þá stöðu lék hann með ÍR í yngri flokkunum. Þó svo samningur Björgvins sé til tveggja ára þá getur hann farið út næsta sumar ef eitthvað spennandi kemur upp á borðið.
Olís-deild karla Mest lesið „Viljum ekki drepa þig en nú er nóg komið“ Fótbolti Argentína - Egyptaland | Messi gegn Salah Fótbolti Belgar stigu Trump-dans og skutu föstum skotum Fótbolti Maður dagsins á HM: Feimni boltastrákurinn sem gerði gestgjöfunum grikk Fótbolti Allt að verða vitlaust í Noregi: „Þjóðin komin með mjög óraunhæfar væntingar“ Fótbolti Frakkar áfrýja spjaldi til FIFA Fótbolti Rodri skammaðist sín og baðst fyrirgefningar Fótbolti Kallar Infantino trúð: „Sleikjandi rassgatið á ríku köllunum“ Fótbolti Infantino gefur út yfirlýsingu vegna afskipta Trumps Fótbolti Skoraði á HM en nær ekki að spila í Fossvogi Fótbolti Fleiri fréttir Bjarki Már til franska stórveldisins Sjokkið breyttist í ævintýri Ásthildur Jóna með tíu mörk á HM og Ísland í undanúrslit Forsetabikarsins Segja Breka á leiðinni til Benfica Børge Lund tekur við stórliði Kiel Díana tekur dóttur sína með sér yfir í Fram Fjórar heiðraðar sem spiluðu fyrsta landsleikinn fyrir sjötíu árum Einar hjá Fram næstu þrjú árin Miðar í sölu á HM í handbolta í dag Þrír íslenskir landsliðsmenn tilnefndir til virtra verðlauna Viktor Gísli vann Meistaradeildina með Barcelona Magdeburg fékk bronsið Viktor Gísli í úrslitaleik Meistaradeildarinnar Magdeburg tapaði í undanúrslitum Strákarnir okkar stálheppnir með riðil á HM Benedikt verður lærisveinn Arnórs Engin Ungverjagrýla á HM Orri Freyr hetjan og Sporting bikarmeistari Valskonur styrkja sig Markakóngurinn endaði tímabilið með látum Lið Blæs bjargaði lærisveinum Rúnars „Hann breytti kúlturnum“ Örn tekur við karlaliði Selfoss Guðjón Valur þjálfari ársins í Þýskalandi Löðrandi sveittur Donni þurfti að sætta sig við silfur Silfurdrengurinn Ingimundur þjálfar Aftureldingu ásamt Hrannari Stórt tap tryggði sæti í Meistaradeildinni Lovísa og Arnór Snær best í Olís deildinni Missti af dýrmætum stigum gegn meisturunum Jafnir leikir hjá Íslendingunum Sjá meira