Körfubolti

Henning ráðinn nýr A-landsliðsþjálfari kvenna

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Henning Henningsson var aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Hauka  í vetur.
Henning Henningsson var aðstoðarþjálfari Íslandsmeistara Hauka í vetur. Mynd/Vilhelm

Stjórn Körfuknattleikssambands Íslands-KKÍ hefur gengið frá ráðningu Hennnings Henningssonar sem þjálfara A-landsliðs kvenna.

Henning mun taka við liðinu af Ágústi Björgvinssyni sem hefur þjálfað A-landsliðs kvenna síðasta eina og hálfa árið.  Þetta er ekki í fyrsta sinn sem Henning kemur að A-landsliði kvenna því hann var aðstoðarþjálfari Ívars Ásgrímssonar á sínum tíma.

Henning hefur mikla reynslu sem leikmaður og þjálfari. Henning hefur þjálfað í efstu deildum karla og kvenna og einnig var Henning þjálfari unglingalandsliðs kvenna fyrir nokkrum árum.

Henning Henningsson var aðstoðarþjálfari Íslands- og deildarmeistara Hauka í Iceland Express deild kvenna í vetur.

Næsta verkefni kvennalandsliðsins verða Smáþjóðaleikarnir á Kýpur sem fara fram í byrjun júní n.k. og mun liðið hefja æfingar fljótlega. Í ágúst mun liðið leika seinni umferðina í Evrópukeppninni.

Ráðning Hennings er fram yfir Evrópukeppnina í haust.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×