Körfubolti

Ægir Þór gaf flestar stoðsendingar í Bosníu

Óskar Ófeigur Jónsson skrifar
Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði íslenska 18 ára landsliðsins.
Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði íslenska 18 ára landsliðsins. Mynd/Heimasíða KKÍ

Ægir Þór Steinarsson, fyrirliði íslenska 18 ára landsliðsins, gaf flestar stoðsendingar í b-deild Evrópukeppninnar sem lauk í Bosníu í gær. Íslenska liðið vann fjóra síðustu leiki sína og tryggði sér 13. sætið með öruggum sigri á Dönum.

Ægir Þór gaf 34 stoðsendingar í síðustu fjórum leikjunum á mótinu og endaði mótið með 44 stoðsendingar í 8 leikjum eða 5,5 að meðaltali í leik.

Ægir fékk aðeins eina stoðsendingu í fyrstu tveimur leikjunum þar sem tölfræðiskráningin var mjög undarleg en lét það ekki þó ekki spilla fyrir sér.

Ægir Þór var einnig með 10,4 stig og 5,4 fráköst að meðlatali í leik á mótinu.








Fleiri fréttir

Sjá meira


×