Andri: Ekki sáttur við að vinna bara heimaleikina Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 27. apríl 2009 23:25 Haukamaðurinn Kári Kristján Kristjánsson í baráttunni í kvöld. Mynd/Stefán
Haukamaðurinn Andri Stefan vill ekki verða Íslandsmeistari bara með því að vinna eingöngu heimaleikina í rimmu liðsins gegn Val um meistaratitilinn í N1-deild karla. Haukar unnu í kvöld fimm marka sigur á Val, 29-24, í fyrsta leik liðanna um titilinn. Haukar eru með heimavallarréttinn og dugir því að vinna sína heimaleiki til að tryggja sér titilinn. „Ég yrði alls ekki sáttur við að verða Íslandsmeistari bara með því að vinna heimaleikina. Til þess að sýna að við séum verðugir Íslandsmeistarar vil ég vinna minnst einn leik á útivelli. Þannig eru bara meistaralið sköpuð," sagði Andri eftir leikinn í kvöld en hann fór mikinn og skoraði átta mörk fyrir Hauka. „Þetta var fyrst og fremst varnarsigur," sagði hann um leik kvöldsins. „Við vorum nokkuð skynsamir í sókninni og stöðvuðum svo hraðaupphlaupin þeirra. Við vörðumst vel og ég held að þetta hafi verið lykilatriði leiksins." Haukar byrjuðu reyndar frekar illa í leiknum. „Það ríkti mikil spenna fyrir leikinn enda við búnir að bíða lengi eftir þessu. Við þurftum bara nokkra spretti til að hrista þennan spenning af okkur og eftir það fórum við að spila okkar leik." Næsti leikur liðanna fer fram í Vodafone-höllinni á miðvikudagskvöldið. „Ég held að við mætum öðruvísi Valsliði þá heldur en við gerðum nú í kvöld. Ef við vorum 100 prósent í kvöld þurfum við að vera 150 prósent í þeim leik bara til að eiga séns."
Olís-deild karla Mest lesið Gleði og sorg í sigri Liverpool Enski boltinn Joshua kjálkabraut Paul Sport Gagnrýndi Paul: „Beið eftir að verða sleginn“ Sport Slot fámáll um stöðuna á Isak Enski boltinn Ronaldo á nærbuxunum lætur Elon Musk efast um sjálfan sig Fótbolti Gyökeres skaut Arsenal aftur á toppinn Enski boltinn Salah bað samherjana afsökunar Enski boltinn Rekinn af HM eftir að hafa fallið á lyfjaprófi Sport Lineker fokillur við blaðamann: „Þvílíkt kjaftæði“ Enski boltinn Stór nöfn úr leik á HM í pílukasti Sport Fleiri fréttir Donni fagnaði EM vali með skotsýningu Sigvaldi Björn fjarri góðu gamni í sjaldséðu tapi Kolstad Eva Björk með stórleik í fyrsta sigri Stjörnunnar „Hann er ein stærsta ástæðan fyrir því“ KA-menn fengu góða jólagjöf Flautumark hjá FH og ÍR með þeim í Höllina KA í undanúrslit á kostnað bikarmeistaranna Stærsti leikur ársins í Eyjum fer fram í kvöld „Er því miður kominn í jólafrí“ „Þetta var mjög skrítinn leikur“ Haukakonur í fjórða sætið KA/Þór - Valur 23-30 | Ótrúlegur viðsnúningur gestanna Ómar óstöðvandi og Magdeburg í undanúrslit Ómar Ingi fær meiri ábyrgð og tekur við kyndlinum af Aroni Ekkert stríð við Porto og einstakur Þorsteinn nítjándi maður Síðasta verkefni reyndist dýrt fyrir Sigvalda Teitur fer á EM sem hornamaður í stað Sigvalda Snorri kynnti EM-strákana okkar Hleyptu Þorsteini ekki heim og vilja ekki að hann fari á EM Kári og Logi vilja henda Ými út úr landsliðinu Sagður utan hóps fyrir Bjarka og Orra Geggjaðar Eyjakonur á toppinn Þorsteinn Leó að ná sér „langt á undan áætlun“ Birtu tölvupóst þar sem efast er um heilsu forseta IHF Valdi ekki eigin leikmann í landsliðið Halda Orra og Sporting engin bönd Viktor Gísli stóð vaktina er fullkomið gengi Börsunga hélt áfram Snorri kynnir EM-fara í vikunni Mega handvelja lið utan Evrópu inn í Meistaradeildina EM ekki í hættu Sjá meira