Valur vann stórsigur á FH Eiríkur Stefán Ásgeirsson skrifar 11. desember 2008 21:26 Baldvin Þorsteinsson skoraði tíu mörk fyrir Val í kvöld. Mynd/Anton
Valsmenn eru með þriggja stiga forystu á toppi N1-deildar karla eftir níu marka sigur á FH í kvöld, 29-20. Alls fóru þrír leikir fram í deildinni í kvöld. Akureyri mistókst að komast upp í annað sæti deildarinnar er liðið tapaði fyrir HK á útivelli, 25-21. Þá unnu Haukar sigur á Víkingum á útivelli, 25-22. Valur er með fimmtán stig í efsta sæti deildarinnar en næstu fjögur lið í deildinni eru öll með tólf stig. Þetta eru FH, Akureyri, Haukar og Fram. Liðin hafa þó spilað mismarga leiki. Valur og Akureyri hafa spilað ellefu leiki, FH og Haukar tíu en Fram níu. HK er svo í sjötta sæti með tíu stig eftir jafn marga leiki, Stjarnan í því sjöunda með sex og Víkingur á botninum með eitt stig. Fram og Stjarnan mætast laugardaginn. Valur átti stórleik í síðari hálfleik í kvöld en staðan í hálfleik gegn FH var 12-11, Val í vil. Baldvin Þorsteinsson fór á kostum í leiknum og skoraði tíu mörk en Arnór Þór Gunnarsson sjö. Hjá FH voru Aron Pálmarsson og Jónatan Jónsson markahæstir með fjögur mörk hvor. Haukar voru með fjögurra marka forystu gegn Víkingi í hálfleik í kvöld, 16-12. Elías Már Halldórsson skoraði flest mörk Haukamanna eða sjö talsins. Einar Örn Jónsson kom næstur með fjögur. Hjá Víkingum var Sverrir Hermannsson markahæstur með fimm mörk en þeir Einar Örn Guðmundsson og Þröstur Þráinsson komu næstir með fjögur.
Olís-deild karla Mest lesið Rekinn frá Stjörnunni Körfubolti Skömmin sé nægileg refsing: „Það sem gerðist þetta kvöld er óásættanlegt“ Fótbolti Orri hélt liðsfund án aðkomu Arnars Fótbolti Kane lendir um helgina Körfubolti Algjört bíó í Eyjum: Ótrúlegt klúður og tvö gul og rautt á sömu sekúndu Íslenski boltinn Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Handbolti Útlendingastofnun gefur KR-ingum höfuðverk Körfubolti Landsliðskonan ólétt og leggur skóna á hilluna Íslenski boltinn Ingibjörg orðlaus: „Hversu heppinn er þessi litli strákur?“ Fótbolti „Stígðu út úr torfkofanum, kona“ Sport Fleiri fréttir „Ekkert sem ég missti svefn yfir“ Snorri Steinn valdi tuttugu leikmenn fyrir komandi verkefni Átján ára með fjórtán mörk og Haukar fljúga áfram Afturelding í annað sæti Stórleikur Hauks í sáru tapi og Andri náði ekki að mæta pabba Úr leik þrátt fyrir sjö mörk Einars Braga Gísli markahæstur og Bjarki fagnaði stórsigri Nýr styrktaraðili dönsku úrvalsdeildarinnar í handbolta umdeildur Arnór Snær: „Þvílíka veislan“ FH þurfti að þola annan skell í Portúgal Valur - Tatabánya 38-34 | Annar frábær Evrópusigur Sá besti óvænt orðaður við brottför „Það rignir ekkert inn peningum“ Mál á borði lögreglu eftir leik hjá liði Donna Benedikt birtir mynd frá slysstað HK sótti fyrsta sigurinn með einu marki Flautumark í sigri Viggós á Reyni Þungt tap Íslendingaliðsins Viktor öflugur í öruggum sigri Enn með fullt hús ÍBV vann toppslaginn Uppgjörið: Fram - Valur 25-30 | Valur stöðvaði sigurgöngu Fram FH skoraði hátt upp í fimmtíu mörk gegn Fram Juku verulega á áhyggjur Norðankvenna Cornelia snýr aftur til Íslands Viktor Gísli varð fárveikur á HM Bikarmeistararnir flugu áfram og Afturelding vann í Kópavoginum Íslenskir leikmenn að skila sigrum í Meistaradeildinni Gengi Hauks og félaga ætlar ekki að batna Norska stjarnan lenti í árekstri við dómara Sjá meira