Norðmenn tapa á fjárfestingum í íslenskum fyrirtækjum 12. apríl 2008 12:54 Norski fáninn blaktir á olíuborpalli.
Norski olíusjóðurinn kann að tapa allt að 15 milljörðum íslenskra króna á fjárfestingum í íslenskum bönkum og fjármálafyrirtækjum. Töluvert hefur verið fjallað um íslenskt efnhagslíf í norskum fjölmiðlum að undanförnu. Á vefútgáfu norska viðskiptablaðsins Finansavisen kemur fram að norski olíusjóðurinn hafi á undanförnum árum fjárfest sem samsvarar um 60 milljörðum íslenskra króna í íslenskum bönkum og fjármálafyrirtækjum. Miklar lækkanir á íslenskum hlutabréfamarkaði að undanförnu hafi því komið sér illa fyrir sjóðinn. Áætlað tap hans vegna þessara fjárfestinga er talið nema um 15 milljörðum íslenskra króna miðað við núverandi gengi. Töluvert hefur verið fjallað um íslenskt efnhagslíf í norskum fjölmiðlum að undanförnu. Meðal annars um stöðu Kaupþings banka sem hefur aflað sér nokkurra vinsælda vegna hárra innlánsvaxta. Rætt er um að bankinn hafi orðið illa úti í lánsfjárkreppunni og í Finansavisen er meðal annars varpað fram þeirri spurningu hvort hann kunni að fara á hausinn. Sigurður Einarsson, stjórnarformaður Kaupþings, vísar þessu á bug í viðtali við norska blaðið Næringsliv. Bendir hann á að síðasta ár hafi verið eitt það besta í sögu bankans. Hann segir stöðu bankans vera sterka þrátt fyrir að erlendir fjárfestar hafi reynt að tala íslensku bankana og íslenskt efnahagslíf niður.
Viðskipti Mest lesið Sýkna í vaxtamálinu: „Þetta eru gífurleg vonbrigði“ Neytendur Ólafur Ingi: „Ég er kostuð eiginkona“ Atvinnulíf Stærðin skiptir ekki máli Atvinnulíf Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Viðskipti innlent Að byggja upp vinnustað sem hræðist ekki breytingar Atvinnulíf Kílómetragjaldið mögulega fórnarlamb stjórnarslita Neytendur Megi troða „singles day“ upp í greiðslugáttirnar á sér Neytendur Einróma niðurstaða að Hörður sé eins og Kristján í Frozen Atvinnulíf „Reglugerðin tekur gildi hvort sem menn hafa þetta hugrekki eða ekki“ Atvinnulíf Óábyrgt að afskrifa kílómetragjaldið Neytendur Fleiri fréttir Horfur tveggja banka úr stöðugum í jákvæðar Ísold ráðin markaðsstjóri Frá Bændasamtökunum til Samorku Fáránlegt að eiga ekki „smá Bitcoin“ á Íslandi Deildarstjóri, lögfræðingur og viðskiptastjóri ráðin til Mílu Nýr flugrekstrarstjóri Icelandair Skúli og félagar sýknaðir en þrotabúið fær 750 milljónir Hafna ásökunum um smánarlaun Segja gjald á nikótínpúða leiða til aukinna reykinga „Þið hafið efni á þessari kauphækkun, borgið hana núna“ Staðfesta dóm héraðsdóms en lækka bætur til Vinnslustöðvar Þrír nýir stjórnendur hjá Wisefish Nebraska heyrir sögunni til Smána Bakkavararbræður fyrir greiðslu „fátæktarlauna“ Stækka gagnaverin á Akureyri og í Reykjanesbæ Í beinni: Kosningafundur atvinnulífsins Sætanýtingin aldrei verið betri í október ECIT AS kaupir meirihluta í Bókað frá KPMG Manneskja með von á bakvið hverja einustu umsókn Aukning í ferðalögum til landsins Breytingar í framkvæmdastjórn Origo Linda ráðin framkvæmdastjóri háttsemiseftirlits Ráðinn framkvæmdastjóri Marel Fish Daði og Hrefna nýir deildarstjórar hjá Veitum Skipti máli fyrir rekstur iðnfyrirtækja að lækka vexti og verðbólgu Um 550 milljónum deilt til 27 einkarekinna fjölmiðla Byggja hótel og 1.500 fermetra baðlón í Vestmannaeyjum Eybjörg Helga ráðin forstjóri Eirar, Skjóls og Hamra Akademias tekur yfir rekstur Avia Fjögur ráðin í stjórnendastöður hjá Íslandsbanka Sjá meira