Aðalsteinn í bann fram í febrúar 12. desember 2007 17:25 Aðalsteinn Eyjólfsson Mynd/Róbert
Aganefnd HSÍ úrskurðaði í dag í máli þjálfara þjálfara Fram og Stjörnunnar eftir leik liðanna í N1 deild kvenna fyrir viku, þar sem dómarar leiksins fengu það óþvegið frá þjálfurunum í viðtölum eftir leikinn. Aðalsteinn Eyjólfsson, þjálfari Stjörnunnar, hefur verið settur í bann fram til 1. febrúar þar sem ummæli hans þóttu "órökstuddar dylgjur um dómara og stjórnendur handknattleikshreyfingarinnar og skaða hreyfinguna útávið," eins og segir í úrskurði aganefndarinnar. Aðalsteini hefur einnig verið gert að greiða 50000 krónur í sekt. Aðalsteinn sagði í samtali við fréttastofu Stöðvar 2 að þetta mál væri algjör sirkus frá upphafi til enda. Hann hefði ekki verið kallaður fyrir aganefndina né fengið að senda inn greinargerð og aganefndin hefði ekki tekið fyrir öll gögn í málinu. "Ég ætla að hugsa mín mál," sagði Aðalsteinn. Einar Jónsson þjálfari Fram gekk líka vasklega fram í gagnrýni sinni eftir leikinn en hann hefur beðist afsökunar á framkomu sinni bæði persónulega og opinberlega og því slapp hann með ávítur og er áminntur um að gæta orða sinna í framtíðinni.
Olís-deild kvenna Mest lesið Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Handbolti Leikmaður Man. United neitaði að klæðast regnbogalituðum jakka Enski boltinn Breyta fótboltareglunum vegna Arteta Enski boltinn Luke Shaw algjörlega niðurbrotinn Enski boltinn Rondey rakaði af sér hárið til stuðnings Skúla Körfubolti Amorim varar stuðningsmenn United við: Óveðrið mun koma Enski boltinn Reiddist fréttamanni: Veist við hvern þú ert að tala Enski boltinn Hunsaði varnaðarorðin og skrifaði aftur um ást Jesú á fyrirliðabandið sitt Enski boltinn Fékk ekki að fara inn á út af pínlegu klúðri Fótbolti Van Dijk boðinn nýr samningur Enski boltinn Fleiri fréttir Hrútfirska hornakonan ein sú markahæsta og öruggasta á EM Stelpurnar hans Þóris þéna mun minna samtals en hlaupari Frammistaðan á EM skilaði stelpunum í efri styrkleikaflokk í fyrsta sinn Hrærð yfir viðbrögðum Þóris: „Fæ bara kökk í hálsinn“ Skýrsla Vals: Bölvaður Berlínarmúrinn „Fyrir mig var þetta gríðarlega erfitt“ Tárvot Andrea: „Ógeðslega sár en stolt“ Elín Rósa: Við náðum okkar helsta markmiði „Ákveðinn í að láta þennan leik ekki sitja í mér“ „Langar svolítið að setja punktinn aftan við þetta mót“ Uppgjörið: Ísland - Þýskaland 19-30 | Heim af EM eftir kennslustund Svona eru milliriðlar EM: Þórir byrjar á Dönum Færeyjum skellt af herraþjóðinni og Holland vann með tuttugu Elísa veik og ekki með Tíu sinnum betri handboltaferð en aðrir hafa farið í „Við sjáum möguleika þarna“ „Þær eru búnar að taka nokkra krísufundina“ Ómar með þrjú slitin liðbönd: „Líklegast er HM ekki möguleiki“ Útilokar ekki að Ómar Ingi verði með á HM Þegar stelpurnar okkar unnu Þjóðverja Ómar Ingi ekki með á HM „Þýska liðið er allt önnur skepna“ „Förum léttar inn í þennan leik“ Leikdagur í Innsbruck: Hitum logsuðutækin Oft spurt hvernig sé að vinna með „fúla Íslendingnum“ Óánægður eftir brot á leikmanni Þóris: „Lífshættulegt“ „Þá rennur stressið af manni“ Slóvenía bíður Íslands en ballið búið hjá heimakonum „Gæsahúð allsstaðar“ Hugsaði lítið og stressaði sig minna Sjá meira