Afrita auðveldlega af Blue Ray og HD-DVD 14. febrúar 2007 12:06
Það er orðið alþekkt að eftir því sem framleiðendur DVD og geisladiska búa til betri afritunarvarnir finna tölvuþrjótar leiðir til að komast í kringum þær. Nú er þegar kominn í umferð lykill sem fer framhjá afritunarvörnum á bæði Blue-Ray og HD-DVD diskum, öllum. Áður þurfti sérstakan lykil fyrir hvern einstakan Blue-Ray eða HD-DVD disk. Blue-Ray og HD-DVD standa nú í harðri samkeppni um hvort sniðið vinni almenna hylli notenda en diskarnir eiga sameiginlegt að geta geymt mun meira gagnamagn en hefðbundnir DVD-diskar. Þegar er farið að gefa út tölvuleiki og bíómyndir í hárri upplausn, „high-definition" á svona diskum. Sony hefur veðjað á Blue-Ray í nýjum Playstation 3 leikjatölvum sem líka geta spilað kvikmyndir á Blue-Ray diskum, á meðan Microsoft veðjar á HD-DVD diska í XBox 360 leikjatölvunum. Svo virðist sem Blue-Ray sé nú að vinna stríðið eftir að HD-DVD hafði lengi vel forystu og þá skiptir sköpum að Blue-Ray spilari er staðalbúnaður í PS3 tölvum á meðan kaupa þarf sérstaka viðbót við XBox 360 til að þær spili HD-DVD.
Leikjavísir Tækni Mest lesið Z-kynslóðin sem foreldrar byrjuð að breyta leikreglunum Atvinnulíf „Svo kemur pabbi í heimsókn þegar þarf að vinna einhver flókin verkefni“ Atvinnulíf „Óskiljanleg“ regla leiddi til þess að hann greiddi flugferðina tvisvar Neytendur „Menn voru hér með einhverja sleggju“ Viðskipti innlent Aukning loðnukvótans hittir á svelta markaði Viðskipti innlent Miklar hækkanir í lágvöruverðsverslunum í byrjun árs Neytendur Jaap Stam mætti í Jóa Útherja og heillaði aðdáendur Manchester United Samstarf Hagnaðurinn 39 milljarðar og arðgreiðslur nítján Viðskipti innlent Meiri líkur á svikum þegar börn læri um fjármál á netinu Viðskipti innlent Sesselía stýrir Takk og miðlum hjá Högum Viðskipti innlent Fleiri fréttir Tugum þúsunda sagt upp hjá Amazon Kínverjar með langmesta viðskiptaafgang sögunnar Eitt besta leitarárið á norska landgrunninu Samþykktu stofnun stærsta fríverslunarsvæðis í heimi Sjá meira