Fulltrúi forseta mætti ekki á fund utanríkismálanefndar 7. febrúar 2007 20:00
Hvorki fulltrúi forsetaembættisins né utanríkisráðuneytisins mætti á fund utanríkismálanefndar í morgun, vegna setu forsetans í þróunarráði Indlands. Halldór Blöndal, formaður nefndarinnar, segir að utanríkisráðherra muni koma á fund nefndarinnar síðar. Formaður utanríkismálanefndar greindi frá því í síðustu viku að hann vildi fá fulltrúa forsetaembættisins og utanríkisráðuneytisins á fund nefndarinnar til að skýra hvernig stóð á því að forseti Íslands tók sæti í Þróunarsjóði Indlands, sem hann telur forsetann ekki hafa heimild til að gera án samráðs við utanríkisráðherra. Fulltrúar þessara aðila mættu hins vegar ekki á reglulegan fund utanríkismálanefndar í morgun. Eftir á að hyggja segir Halldór að hann sjái ekki nauðsyn á að kalla forsetaritara fyrir utanríkismálanefnd, þar sem forsetinn vinni á ábyrgð utanríkisráðherra og sé sjálfur óábyrgur af öllum stjórnarathöfnum. En það hefur aldrei gerst í sögu lýðveldisins að forseti Íslands eða fulltrúar hans þurfi að sitja fyrir svörum þingnefndar. Halldór vill hins vegar að utanríkismálaráðherra mæti á fund nefndarinnar. Það sé nauðsynlegt fyrir nefndina að vita með hvaða hætti utanríkisráðherra stendur að utanríkismálastefnunni.
Fréttir Innlent Mest lesið Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Innlent Pítsan sem kostaði 7.740 krónur Innlent „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Innlent Hóta höfnum eftir árás á „krúnudjásnið“ Erlent „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Innlent Skósveinn Trumps í allt of stórum skóm Erlent Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Innlent „Þetta er ekkert grín“ Innlent Allt sem íbúar og tónleikagestir þurfa að vita Innlent Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Innlent Fleiri fréttir Lokuðu aftur Rammagerðinni þrátt fyrir úrskurð um greiðsluskjól Tollmiðlari í stafni S-listans í Hveragerði Kosningar hafnar um sameiningu hreppanna Hefur ekki minnstu áhyggjur af bænum sem þurfti að rýma „Nú getum við sagt það fullum hálsi“ Flutningstakmarkanir kosti samfélagið milljarða árlega Pítsan sem kostaði 7.740 krónur „Þetta er ekkert grín“ Eyþór leiðir en vill ekki stólinn Hætta við flutninga á Skólavörðuholtið „Undarlegt að það hafi ekki orðið mannslát þarna“ Reykt þorskhrogn og handgerð páskaegg í Hörpu Gestir geti spókað sig í þjóðbúningi á samstöðufundi Ótrúlegt að ekki hafi orðið mannslát og óþolandi sóun raforku Brynja Dan slítur öll tengsl við flokkinn Stórt snjóflóð við Siglufjörð og veginum lokað Ákvörðunin stærri en núverandi ríkisstjórn Einn réðst á dyravörð og um tíu voru grunaðir um akstur undir áhrifum Matthías leiðir Framsókn í Árborg „Ekki rétt með farið að einkareknu stöðvarnar séu að skara fram úr“ Svona lítur nýja skólaþorpið í Laugardal út Samfélag sem hugsi svona þurfi líka endurhæfingu Kjartan Kjartansson hlaut blaðamannaverðlaun ársins Útför áhrifamanns, átök um úttekt Viðskiptaráðs og upphitun fyrir Laufeyju Lín Stofna framboð fyrir þá sem leggjast gegn sameiningu Bein útsending: Blaðamennska ársins verðlaunuð Fannst hvergi og var dæmdur í fangelsi Holtavörðuheiði var lokað vegna slyss Listar Vöku kynntir með pompi og prakt Skíðagöngumennirnir komnir í skjól Sjá meira