Skoðun

Stuðningur til námsgagnakaupa

Katrín Júlíusdóttir skrifar
Nemendur í framhaldsskólum fái stuðning til kaupa á námsgögnum." Þessa setningu er að finna í stjórnarsáttmála ríkisstjórnar Samfylkingar og Sjálfstæðisflokks sem samþykkt var af báðum þessum flokkum nú í vor. Þessi stjórnarsáttmáli er mjög merkilegur. Eiginlega merkilegri en stjórnarsáttmálar sem við höfum séð lengi - finnst mér, því hann einkennist af miklum metnaði og framsýni. Sáttmálinn ber þess merki að nýr flokkur er kominn í ríkisstjórn. Sá flokkur er Samfylkingin.

Stöndum við orð okkar

Undanfarna viku hefur birst sérkennileg umfjöllun hér á síðum Fréttablaðsins um þá hugmynd Samfylkingarinnar að bjóða ókeypis skólabækur í framhaldsskólum, til að draga úr námskostnaði framhaldsskólanema og foreldra þeirra. Framsóknarmenn með Höskuld Þórhallsson nýliða á Alþingi í fararbroddi hafa farið mikinn og sakað Samfylkinguna um svik á þessu kosningaloforði á þeim forsendum að ekkert sé um málið fjallað í stjórnarsáttmálanum. Fyrirsögn þessarar greinar staðfestir hið gagnstæða; í kaflanum um barnvænt samfélag er einmitt sérstaklega hreyft þessu umbótamáli og það er sameiginlegur ásetningur stjórnarflokkanna að þessi stuðningur muni ekki einvörðungu ná til skólabóka heldur annarra námsgagna að auki. Þar með verði gætt jafnræðis milli allra nemenda á framhaldsskólastigi, óháð námsgreinum, en margir nemendur svo sem í verk- og listnámi bera mikinn kostnað af öðrum námsgögnum en skólabókum. Ég hef upplýsingar um það að vinna við útfærslu þessa framfaramáls er þegar hafin í menntamálaráðuneytinu og má vænta frekari fregna af málinu þaðan.

Hvað gerði Framsókn?

Að lokum vil ég fagna áhuga framsóknarmanna á þessu máli nú en það er athyglisvert að flokkurinn sem sat samfellt í tólf ár í ríkisstjórn, skyldi fyrst átta sig á því eftir að ríkisstjórnarsetu hans lauk að stuðningur af þessu tagi við framhaldsskólanema væri góð hugmynd. Velkomin í hópinn!

Höfundur er alþingismaður.




Skoðun

Skoðun

Börnin okkar

Halla Karen Kristjánsdóttir,Anna Sigríður Guðnadóttir,Valdimar Birgisson skrifar

Sjá meira


×