Samstarfsörðugleikar í írösku ríkisstjórninni 15. nóvember 2006 19:03 Forsætisráðherra íraks veifar hér til fréttamanna eftir fund með menntamálaráðherra í háskólanum í Bagdad í dag. MYND/AP
Íraska ríkisstjórnin hefur skipst í tvær fylkingar vegna örlaga fólksins sem var rænt í mannráninu í gær. Segja margir þeirra að vígahópar öfgatrúarmanna hafi sýnt að ástandið í Írak er ekki jafngott og sumir vilja vera láta. Forsætisráðherra Íraks, Nuri al-Maliki sem er shía múslimi, reyndi þó að draga úr ótta fólks og sagði að tekist hefði að frelsa flesta þá sem rænt var. Menntamálaráðherra Íraks, Abd Dhiab sem er súnní múslimi, sagði hins vegar að allt að 80 manns væri enn saknað. "Ég hef ákveðið að taka ekki frekari þátt í störfum ríkisstjórnarinnar þangað til þeim sem var rænt hafa verið frelsaðir." sagði hann ennfremur. Talsmaður ríkisstjórnarinnar sagði aftur á móti að aðeins væru tveir til fimm enn í haldi mannræningjanna en afgangurinn, 37 manns, hefði verið frelsaður. Ástæðan fyrir þessu ósamræmi er hversu illa er haldið utan um gögn um starfsfólk í menntamálaráðuneytinu. Al-Maliki bætti því við að þeir myndu gera allt sem í valdi þeirra stæði til þess að ná þeim sem framkvæmdu mannránið. Þetta atvik vekur upp frekari spurningar um hæfni þess íraska öryggisafla sem að Bandaríkjamenn hafa verið að þjálfa upp undanfarið og hugsanlegt brotthvarf Bandaríkjahers frá Írak en það hefur verið mikið í umræðunni í Bandaríkjunum eftir þingkosningarnar sem fóru fram þar í landi 7. nóvember síðastliðinn.
Erlent Fréttir Mest lesið Inga þurfi, rétt eins og aðrir, að hlusta á líkamann Innlent Sérsveitaraðgerðir í Hveragerði Innlent Vara við sviksamlegum tölvupósti í nafni bankans Innlent Kærður fyrir kynferðisbrot og hætti sem vígslubiskup Innlent Sneri ellefu ára dreng niður og sló hann svo Innlent Sjálfstæðisflokkurinn í meirihluta í átján af tuttugu stærstu sveitarfélögunum Innlent Hættulegt að lána lyf Innlent Hundrað mættu í fyrsta hjólastrætóinn hérlendis Innlent Samkomulagi náð og verkfalli aflýst Innlent Inga í veikindaleyfi Innlent Fleiri fréttir Bannar ráðuneytinu að stofna skaðabótasjóðinn Ver billjónum í „draumóra“ um lengra líf Funduðu enn og aftur um Grænland Rýnt í stöðuna í Úkraínu: Nálgast stríðið vendipunkt? Fyrirskipar hernum að taka enn stærri hluta Gasa Ætla að setja Trump á 250 dollara seðil en þurfa að breyta lögum Eldflaug Bezos sprakk í loft upp Tveir særðir eftir að rússneskur dróni lendir á fjölbýlishúsi í Rúmeníu Samningsdrög samþykkt en beðið eftir grænu ljósi forsetans Ungum ökuþórum bannað að keyra á nóttunni og þurfa að merkja sig Húsleit gerð hjá spænskum sósíalistum Saksóknarar rannsaka konu sem Trump braut á Hart sótt að Sánchez: Réttarhöld yfir litla bróður hefjast í dag Ný tilskipun Talíbana lögleiði barnahjónabönd á ný Áframhald á árásum og Trump hefur í hótunum við Óman Líkur á hlýjum og votum vetrum á norðurslóðum Ellefu taldir af eftir að efnatankur gaf sig Ósáttur við skilyrðin Fundust eftir að hafa verið föst í helli í viku Lenda þremur geimförum á tunglinu á þessu ári Trump-liði vann og Demókratar fagna Hörðustu árásir á Líbanon í langan tíma Hótel í fullum rétti að neita konu um kranavatn Bardagabúr rís við Hvíta húsið Skugganefndir styðja umdeilda Demókrata Kalla rússneska sendiherra á teppið vegna hótana Gera almenningssamgöngur ódýrari vegna olíukreppunnar Fleiri „brúðir-ISIS“ lenda í Ástralíu Ráðist á heilbrigðisstarfsmenn í ebólu-faraldri Æfðu árás á Suður-Kóreu Sjá meira