Annar frambjóðenda hafnar kosningatölum í Kongó 14. nóvember 2006 18:55 Hermenn, hlynntir Jean-Pierre Bemba, taka sér stöðu fyrir utan höfuðstöðvar hans í Kinshasa á laugardaginn var. MYND/AP
Jean-Pierre Bemba, forsetaframbjóðandi í Kongó, hefur hafnað úrslitum úr lokaumferð forsetakosninganna þar í landi sem gefa í skyn að Joseph Kabila, núverandi forseti landsins hafi unnið hana. Öruggt er talið að spenna í höfuðborg Kongó, Kinshasa, eigi eftir að aukast í kjölfarið en 4 létust í byssubardögum á milli stuðningsmanna forseta frambjóðendanna á laugardaginn var. Alls eru um 17.500 friðargæsluliðar í Kongó, en það er stærsta friðargæslulið í heiminum, til þess að reyna að koma í veg fyrir að ofbeldi blossi upp á ný eftir forsetakosningarnar, sem áttu að binda endi á einhverjar mestu stríðshremmingar í Afríku. Bráðabirgðaúrslit hafa litið dagsins ljós í 159 af 169 kjördæmum og samkvæmt þeim er Kabila með um 59.2% atkvæða en Bemba með 40.8%. Bemba er sjálfur með lið sem fer á kjörstaði og safnar úrslitum og segir að samkvæmt þeim sé hann með forskot á Kabila og hafi um 52.5% atkvæða. Bemba hefur ennfremur sagt að ef hann haldi að um svik hafi verið að ræða muni hann ekki þurfa að standa við það loforð sitt að hlýta úrslitum kosninganna.
Erlent Fréttir Mest lesið Segjast ekki ætla að skipta sér af atkvæðagreiðslunni Innlent Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Erlent Virtist taugaóstyrkur og brast í grát Innlent Áætlaður kostnaður vegna símafrísins 75 milljónir króna Innlent Ingunn játar að hluta í Reykholtsmálinu Innlent Eiga eftir að taka umsækjendur í viðtöl Innlent Víðtækar götulokanir á nýrri hlaupaleið Reykjavíkurmaraþons Innlent Flutningabíll á hliðinni í Ártúnsbrekku Innlent Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Erlent Djúpfölsun nýtt til fjársvika á gervifjarfundum Innlent Fleiri fréttir Fedorov kallar eftir forsetakosningum í Úkraínu Áhyggjufullir bandamenn í Asíu: Vilja taka fulla stjórn á eigin vörnum Tilkynna refsiaðgerðir gegn háttsettum aðilum Alþjóðasakamáladómstólsins Telja Ísland geta liðkað fyrir inngöngu Svartfjallalands Stjórnarandstaðan leiðir með tíu prósentustigum í könnunum „Dýrslegt“ morð í grænlensku smáþorpi Grunnþjálfun hermannanna fer öll fram á Grænlandi Þrjátíu börn getin á frjósemisstofu með óþekktum kynfrumum Enginn árangur af fundi Kushner og Netanyahu Geta skotið drónum langt inn fyrir landsvæði NATO-ríkja Haraldur konungur lagður inn á spítala Átti í samskiptum við eftirhermu starfsmannastjóra Hvíta hússins Yfirheyra bandamenn sína í NATO Ellefu ára fangelsi fyrir að mótmæla stríði Pútíns „Ef Óman þvælist fyrir, sprengjum við þá í tætlur" Réttarhöldin gegn Murdaugh færð, fari þau yfir höfuð fram Senda hermenn gegn glæpasamtökum í „bakgarðinum“ Trump tekur sér stöðu með Norður-Kóreu gegn Suður-Kóreu Hæsta stytta Evrópu af Maríu mey afhjúpuð Úkraína gæti átt heimasmíðaðar skotflaugar innan nokkurra mánaða Kushner mættur til Ísrael Tveir látnir í gróðureldum í Grikklandi Herkvaðning í Rússlandi vofir yfir Úkraínumönnum Eldflaugum og drónum rignir yfir Kænugarð og Moskvu Tólf látnir eftir að ferðamannarúta hafnaði í skurði Fimm særðust í skotárás í bandarískum háskóla Fagnað á götum Kabúl Fannst hann ekki geta haldið áfram Bætist í tölu látinna Sextán ára drengur stunginn til bana í busavígslu Sjá meira