Skjóta Tíbeta á flótta 14. október 2006 17:29
Rúmenskir kvikmyndatökumenn náðu því á mynd þegar kínverskir landamæraverðir skutu á hóp Tíbeta sem var fótgangandi á leið yfir til Nepals. Tveir létu lífið. Kínversk stjórnvöld viðurkenna að átök hafi átt sér stað, en halda því fram að fólkið hafi ráðist á landamæraverðina.Kvikmyndatökumennirnir voru í för með alþjóðlegum fjallgönguhópi í Nanga La skarði milli Nepals og Kína. Þeir sáu nokkuð langa röð af fólki á gangi í snjónum, og gerðu ráð fyrir að þarna væru Tíbetar á ferð, á langri leið til Indlands að ná fundum Dalai Lama. Þá heyrðist skothríð og eftir lá einn látinn og tveir særðir. Annar ku hafa látist síðar. Síðan mátti sjá landamæraverðina bogra yfir líkinu, án þess að hreyfa það úr stað.Fjallgönguhópurinn hafði tjaldað yfir fötu til að nota sem salerni og þar leitaði einn Tíbetinn skjóls. Hann sagði það rétt að hópurinn hefði verið á leið yfir til Indlands að hitta Dalai Lama. Kvikmyndatökumaðurinn rúmenski gaf honum föt og sokkapar og hann hélt för sinni yfir skarðið áfram þegar dimmt var orðið.Fjölmargir Tíbetar reyna að komast yfir landamærin á ári hverju, en andlegur leiðtogi þeirra, Dalai Lama, hefur verið í útlegð á Indlandi síðan árið 1959.
Erlent Fréttir Mest lesið Stigmögnun í nágrannaerjum: „Hann vildi keyra á mig“ Innlent „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Erlent „Enda ekki í nokkru einasta ástandi til að vera meðal fólks“ Innlent Gengst nú við skilaboðunum umdeildu Innlent Hægt að nálgast vottorð um að makinn hafi rangt fyrir sér Innlent „Það átti að taka mig í karphúsið“ Innlent Árásarmaðurinn svartklæddi reyndist vera ættingi Innlent Tugþúsundir mótmæltu ICE Erlent Selenskí undir miklum þrýstingi Innlent Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Erlent Fleiri fréttir „Eftir þetta getur enginn treyst honum“ Tugþúsundir mótmæltu ICE Funda um frið í skugga banvænna árása næturinnar Ungur drengur látinn eftir hákarlaárás Grinch siglt til hafnar í Marseille Ólympíufarinn eftirlýsti gómaður eftir áratug á flótta Bein útsending: Þorgerður ávarpar mannréttindaráðið vegna Íran Viðurkenna loks, fyrir mistök, að Úkraínumenn hafi sökkt Moskvu Repúblikanar leita aftur á náðir Musks Leysir upp þingið og boðar til kosninga í Japan Sex særðir eftir hnífaárás á mótmælum í Antwerpen Rússar, Úkraínumenn og Bandaríkjamenn funda í fyrsta sinn við sama borð Trump fer í fýlu og dregur boð sitt til Carney til baka „Við getum gert það sem við viljum“ Viti ekki hvað er í samningi NATO sem semji ekki fyrir hönd Grænlands Frakkar riðu á vaðið og tóku skuggaskip Rússa Sendi Evrópu tóninn: „Þú mótar ekki nýja heimsmynd með eintómum orðum“ Draumur Trumps um „Rivíeru Mið-Austurlanda“ lifir enn Samkomulagið sem ekkert samkomulag er um Drógu mann út á nærbuxunum sem hafði ekkert til saka unnið Trump kynnti friðarráðið Sýknaður af ásökunum um aðgerðaleysi þegar nítján börn dóu Rutte samdi ekki við Trump fyrir hönd danska konungsríkisins Handtóku fimm ára dreng og föður hans og sendu til Texas Samkomulagið veiti Bandaríkjunum aðgang að auðlindum Grænlands „Ramma framtíðarsamkomulags“ náð um Grænland og hætt við tolla Var á ráðstefnunni í Davos: „Fólk andaði kannski aðeins léttar“ X fyllist af gríni um Ísland/Grænland Þessi hönd er um sjötíu þúsund ára gömul Verði að eignast þetta „stóra fallega stykki af ís“ Sjá meira