Vill nánari útskýringu á ummælum um ættleiðingu samkynhneigðra 22. ágúst 2006 17:32 Hrafnhildur Gunnarsdóttir formaður Samtakanna '78. Mynd/Valli
Formaður Samtakanna '78 hefur óskað eftir fundi með stjórn Íslenskrar ættleiðingar vegna ættleiðinga samkynhneigðra á Íslandi. Hún vill fá nánari útskýringar á ummælum forsvarsmanns Íslenskrar ættleiðingar um möguleika samkynhneigðra til ættleiðinga. Ættleiðingar samkynhneigðra voru leyfðar að fullu hér á landi frá og með 27. júní síðastliðnum. Samtökin '78 vinna nú að því að greiða götu samkynhneigðra para og hjóna sem vilja ættleiða börn. Íslensk stjórnvöld eru með samninga um ættleiðingar við fimm lönd; Indland, Kína, Kólumbía, Tékkland og Tailand, en ekkert þessara landa leyfir ættleiðingu til samkynhneigðra. Íslensk ættleiðing fer með umsóknir um ættleiðingu en það er í höndum dómsmálaráðuneytisins að semja við ný lönd um ættleiðingar. Hrafnhildur Gunnarsdóttir, formaður samtakanna 78 segir að á heimasíðu íslenskrar ættleiðingar komi fram sjónarmið sem samræmist ekki lögum og reglum stjórnvalda, hvað varðar réttindi samkynhneigðra. Þar segir meðal annars að samkynhneigð sé ekki viðurkennd í öllum samfélögum með sama hætti og hérlendis og á Vesturlöndum. Samskipti við yfirvöld og stofnanir annarra landa krefjist virðingar fyrir lögum og siðvenjum í viðkomandi löndum. Samtökin leggja því áherslu á að sérstökrar varðúðar verði gætt við stofnun nýrra samninga við önnur lönd og að þeir hafi ekki áhrif á núverandi samninga til ættleiðingar.
Fréttir Innlent Mest lesið Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Innlent Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Innlent „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Innlent „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Innlent Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Innlent „Stefnum að því að koma meira en tvíefld til baka“ Innlent Alltaf jafn óþægilegt að heyra af nálægri árás Innlent Gluggar þaktir klósettpappír og túrblóð í lakinu: „Aldrei séð annað eins“ Innlent Nýja brúin átti að bæta flæðið: Mislæga lausnin vék fyrir ljósum Innlent Þungt högg í magann með tvíburastelpur á vökudeild Innlent Fleiri fréttir Lögreglan á Norðurlandi eystra lýsir eftir fjórtán ára stúlku Bleikjuvinnslunni breytt í brugghús Lögregla og björgunarsveitir leita að manneskju á Akureyri „Þarf að hafa afleiðingar ef fólki er lógað af heilbrigðisstofnun“ Mikilvægt að draga lærdóm af gerð gatnamótanna „Vald flugstjórans er náttúrulega alveg klárt“ Segir málið verða að hafa afleiðingar fyrir Skúla Tómas Vestmannaeyjabær áfrýjar til Landsréttar Segir Dag plata með úreltri skýrslu Leiðrétting fréttar: Það sem Þorgerður sagði í raun Íslenskt sumarveður verðmæt auðlind Vara við hættulegum aðstæðum við Sólheimajökul Ari „eltihrellir“ eftirlýstur og handtekinn á Kýpur Hálfs árs hrakfallasögu Herjólfs virðist lokið „Ef læknir myndi skjóta sjúkling þá mætti ekki ákæra hann“ Undirbúa sig fyrir töluvert fleiri gesti á Einni með öllu Bakkakotsvelli lokað vegna rigninga: Grjótharðir golfarar láta í minnipokann Fimmtán ár frá hryðjuverkunum í Útey og Ósló Landlæknir hafi í raun sakfellt Skúla Tómas Óttast um fleiri kindur eftir að tík týndist Úrskurður sagður skapa hættulegt fordæmi og fimmtán ár frá atburðunum í Útey Hamingjuóskum rignir yfir Skúla Tómas: „Vanhugsað strax frá upphafi“ Opna senn fyrir atkvæðagreiðslu utan kjörfundar Bandero innan lögsögunnar á ný Páll biður einhvern að forða því að Ísland verði að athlægi Aukið aðgengi að áfengi auki neyslu Regnboginn verði málaður aftur en með breyttu sniði „Verið að herja á fólk sem er búið að missa maka“ „Mikilvægast að þetta verði ekki eins og einhver hótelsundlaug á Tenerife“ Bandero stefnir í átt að Íslandi á ný Sjá meira