Mögulegt vestnorrænt fríverslunarsvæði 21. ágúst 2006 18:45
Það var ályktun ársfundar Vestnorræna ráðsins í Færeyjum í dag, að ríkistjórnir Íslands, Færeyja og Grænlands eigi að kanna möguleika á aðild Grænlands að Hoyvíkur-samningnum. Sá samningur er víðtækur fríverslunarsamningur sem gerður hefur verið og leiðir hann til íslensks-færeysks efnahagssvæðis þegar hann tekur gildi síðar á árinu. Við gildistöku samningsins mun heimamarkaður Íslands stækka um 50.000 manns. Samningurinn gerir sérstaklega ráð fyrir útvíkkun hans til fleiri hluta konungsveldisins Danmerkur. Vestnorræna ráðið vill nú kanna möguleika á þátttöku Grænlands í samningnum. Með því yrði til vestnorrænt fríverslunarsvæði. Einnig samþykkti ráðið að löndin þrjú skuli skiptast á launuðum konsúlum með diplómatíska stöðu sem styrkja mundi samstarf þeirra enn frekar. Á ársfundinum var Jonathan Motzfeld, formaður grænlenska þingsins, kjörinn formaður og Halldór Blöndal, formaður utanríkismálanefndar og Íslandsdeildar Vestnorræna ráðsins, kjörinn varaformaður. Þá greindi Ole Stavad, Forseti Norðurlandaráðs, að forsætisnefndir Vestnorræna ráðsins og Norðurlandaráðs hefðu ákveðið að gera uppkast að formlegum samstarfssamningi milli ráðanna tveggja. Fundurinn samþykkti einnig tillögur þess efnis styrkja skuli samstarf þjóðanna í ferðamálum og í baráttu gegn reykingum.Þetta kemur fram í fréttatilkynningu um ársfund Vestnorræna ráðsins sem lauk í dag.
Innlent Mest lesið Viðvaranir á viðvaranir ofan Veður Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Innlent Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína Innlent Styður Repúblikana með tugum milljarða Erlent Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Innlent Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Innlent Segja hálfa milljón hafa tekið þátt Erlent Fjörutíu ár fyrir morðið á Tupac Erlent Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða Innlent Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Innlent Fleiri fréttir Kröfur sem einstaklingum er ómögulegt að uppfylla Vikan lengdist og auglýsingahlé urðu tíðari Heppin móðir á Suðurlandi vann 42 milljónir Hvetur verkalýðshreyfinguna til samstöðu Skuldar ekkert Fór úr bílnum og hljóp undan lögreglu Enn versnar spáin með nýjum viðvörunum Bandero leitar skjóls í Reykjavík Air Atlanta vinnur áhættumat vegna árása Húta Baráttan um varaforsetana: Valdabrölt eða samsæriskenningar? Salmonella greindist í kryddi Kokku Frumvarp um Ríkisútvarp gagnrýnt harðlega í samráðsgátt Stjórnarandstaðan segir „forfallavírus“ ganga meðal ráðherra Vilja borga fyrir eftirlit með au pair Pawel tekur við af Sigmari sem þingflokksformaður Þingmaðurinn hefði mögulega ekki átt að taka Íbúfen Leita ökumanns sem ók á dreng á reiðhjóli „Þá tökum við auðvitað tillit til þess og hlustum“ Mögulegar rafmagnstruflanir í stórhríðinni Lægðin hefur alla burði til að verða söguleg Viðurkennir mistök við skipan Jafnréttissjóðs Fjöldi hafi sagt upp og fleiri íhugi stöðu sína „Maður undirbýr sig fyrir það versta“ Synjað um heimilisuppbót vegna sameiginlegrar þvottavélar og snyrtingar Vona að ágreiningur liti ekki þing ASÍ Háskólarnir verði betur tengdir með breyttri strætóleið Lögreglan biðlar til fólks að flýta ferðum eða bíða „Ég skil hvað hún á við, en þannig virkar rekstur ekki“ Ákveðið álag sem maður sé undir án þess að fatta það Undirmönnun hjúkrunarfræðinga tengist dánartíðni sjúklinga Sjá meira