Geimskotið gekk vel 4. júlí 2006 21:45 MYND/AP
Geimferjunni Discovery var skotið á loft frá Canaveral-höfða á Flórída á sjöunda tímanum í kvöld. Geimskotið fór að óskum og er ferjan væntanleg aftur til jarðar þann sextánda þessa mánaðar. Geimskotið í dag er það fyrsta á þessu ári og aðeins í annað skipti sem geimferju er skotið á loft frá því Columbia-geimflaugin fórst fyrir þremur árum með sjö innanborðs. Fresta þurfti skoti Discovery tvívegis um helgina vegna veðurs og í raun var óvíst hvort hægt yrði að skjóta geimflauginni á loft í dag þegar sprunga fannst í einangrun á ytri eldsneytistanki geimflaugarinnar í gær. Þá var óttast að geimskotinu yrði enn slegið á frest. Sérfræðingar hjá bandarískju geimferðastofnuninni, NASA, komust hins vegar að þeirri niðurstöðu að þetta skapaði enga hættu og því var gefið leyfi fyrir því að flauginni yrði skotið á loft. Sjö geimfarar eru um borð, fimm karlmenn og tvær konur. Þau eru að flytja tæp þrettán tonn af búnaði og birgðum til alþjóðlegu geimstöðvarinnar. Einn geimfaranna verður þar eftir. Auk þessa munu geimfararnir um borð í Discovery gera prófanir á öryggiskerfi sem tekið var í notkun eftir að Columbia fórst. Áætlað er að Discovery komi aftur til jarðar þaðan sem henni var skotið þann sextánda júlí næstkomandi.
Erlent Fréttir Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Erlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira