Erlent

Bush fundar með leiðtogum ESB í dag

Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis, tók á móti George Bush Bandaríkjaforseta í Vín í gærkvöld.
Wolfgang Schüssel, kanslari Austurríkis, tók á móti George Bush Bandaríkjaforseta í Vín í gærkvöld.

George Bush Bandaríkjaforseti kom í gærkvöld til Vínar í Austurríki þar sem hann mun funda með leiðtogum Evrópusambandsins. Fundurinn verður í dag og þar hyggst Bush leita aukins stuðnings frá Evrópuþjóðunum í deilunni við Írana um kjarnorkuáætlun þeirra síðarnefndu og við uppbyggingu í Írak. Þá er búist við að viðræður um afnám verndartolla í landbúnaði verði einnig á dagskrá fundarins. Búist er við mótmælum í Vín vegna komu Bush þar sem andstaða er víða í Evrópu gegn utanríkisstefnu Bandaríkjamanna. Reiknað er með að Bush verði hvattur til að loka Guantanamo-fangabúðunum en mikill styrr hefur staðið um þær undanfarin misseri.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×