Myndir af sprungnum símboðum sína merkingar sem benda til þess að símboðarnir hafi verið af gerðinni AR-924, sem upprunalega voru framleiddir af Gold Apollo.
Hsu Ching-kuang, stofnandi Gold Apollo, sagði blaðamönnum í morgun að BAC hefði framleitt þessi tæki í tæp tvö ár og að hann hefði ekki hugmynd um hvernig sprengjum hefði verið komið fyrir í símboðunum.
„Ég er bara að sinna fyrirtæki mínu. Af hverju er ég tengdur við einhverja hryðjuverkaárás,“ sagði Hsu, samkvæmt frétt Washington Post.

New York Times hefur eftir Hsu að BAC hafi gott orðspor á símboðamarkaðnum. Vísaði hann þó til „undarlegs“ atviks þegar banki í Tavían stöðvaði millifærslu frá BAC vegna gruns um að millifærslan kæmi frá ríki í Mið-Austurlöndum.
Viðskiptaráðuneyti Taívans segir gögn ekki sýna beinar sendingar símboða til Líbanon. Þess í stað hafi slík tæki að mestu verið send til Evrópu og Norður-Ameríku.
Fyrirspurnum og símtölum til BAC hefur ekki verið svarað. Vefsíðu fyrirtækisins hefur þar að auki verið lokað.

Blaðamenn AP fréttaveitunnar skoðuðu heimilisfangið í Búdapest, þar sem BAC er sagt vera til húsa. Þar kom kona til dyra sem neitaði að kynna sig. Hún sagði að húsnæðið væri skráð sem höfuðstöðvar nokkurra fyrirtækja.
Cristiana Rosaria Bársony-Arcidiacono er skráður eigandi fyrirtækisins en fjölmiðlum ytra hefur ekki tekist að ná sambandi við hana.
AP segir BAC líklega einhverskonar skúffufyrirtæki.
Tala látinna komin í tólf
Umræddur símboði getur einungis tekið við skilaboðum og sendir ekki neitt frá sér. Þá er rafhlaða hans á stærð við AA batterí og er ómögulegt að það geti sprungið svo fólk láti lífið, samkvæmt fyrirtækinu.
Heilbrigðisráðherra Líbanon sagði í morgun að tala látinna væri komin í tólf og þar af væru tvö börn. Um 2.800 manns eru sagðir hafa særst og þar af eru um þrjú hundruð í alvarlegu ástandi, samkvæmt ráðherranum.
Klukkan 15:30 að staðartíma í Líbanon fengu allir símboðarnir skilaboð, sem virtust fyrst um sinn koma frá leiðtogum Hezbollah. Skilaboðin eru sögð hafa virkjað sprengjur sem búið var að koma fyrir í fjölmörgum símboðum og sprungu þeir samstundis í Líbanon og í Sýrlandi, þar sem Hezbollah-hryðjuverkasamtökin eru umsvifamikil.
Leiðtogar Hezbollah-hryðjuverkasamtakanna hafa viðurkennt að símboðarnir voru þeirra. Þeir saka Ísraela um árásina og hafa heitið hefndum.
New York Times hafði eftir heimildarmönnum í gær að sprengjum hefði verið komið fyrir í símana á einhverjum tímapunkti áður en þeir voru seldir til Hezbollah.