Erlent

Ilmur Beckhams eitraður

Ilmur Beckhams er eitraður ef marka má orð Grænfriðunga sem létu greina innihald nýs herrailmvatns sem knattspyrnuhetjan David Beckham hefur lagt nafn sitt við.

Grænfriðungar segja að niðurstöðurnar sýna að ilmurinn, sem ber heitið Instinct, innihaldi efni sem líkleg séu til að hafa hamlandi áhrif á sæðisframleiðslu. Þau áhrif eru jú langt frá því sem menn vonist eftir þegar þeir úði á sig dýrum ilmi.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×