Erlent

Málverk selt á 10 milljarða

Málverk Gustavs Klimt verður nú til sýnis í þessu safni í New York.
Málverk Gustavs Klimt verður nú til sýnis í þessu safni í New York. MYND/AP

Málverk austurríska málarans Gustav Klimt sem Nasistar stálu á valdatíma sínum í Þýskalandi var selt í New York í gær, að því er talið er, fyrir jafnvirði rúmra 10 milljarða íslenskra króna. Málverkið er eitt fjögurra verka Klimt sem Nasistar hrifsuðu til sín.

Verkið ber nafn viðfangsefnsins og heitir Adele Bloch-Bauer eitt 1. Það var frænka Bloch-Bauer sem seldi myndina safni í New York. Kaupverðið hefur ekki verið gefið upp en bandaríska blaðið New York Times hefur eftir heimildarmönnum að það sé 135 milljónir bandaríkjadala.

Verkið var til sýnis í safni í Austurríki og lögðu ættingjar Bloch-Bauer áherslu á að endurheimta það. Þeim var lítið ágengt þar til 1998 þegar austurrískum söfnum var gert skilt að skila verkum sem nasistar stálu.






Fleiri fréttir

Sjá meira


×