Smyglaði sprengiefni hugsanlega í skóm sínum 16. júní 2006 21:49 MYND/AP
Maður er grunaður um að hafa borið sprengiefni í skóm sínum inn til föstudagsbæna í Buratha-moskunni í Norður-Bagdad í dag. Í það minnsta 11 létust og 25 særðust þegar hann sprengdi sig í loft upp. Heimildum ber ekki saman hvernig maðurinn smyglaði sprengiefninu fram hjá öryggisvörðum inn í moskuna, lögreglan segir manninn hafa borið sprengiefnið í belti um sig miðjan en ímaminn við moskuna heldur því fram að maðurinn hafi falið efnið í skónum. Hann mun svo hafa sprengt sig í loft upp þegar öryggisverðir nálguðust hann. Ströng öryggisgæsla hefur verið við Buratha-moskuna frá því að 85 manns létu þar lífið þegar fjórir sprengdu sig í loft upp þann sjöunda apríl. Einnig var gripið til þess ráðs að banna alla bílaumferð um götur Bagdad-borgar í fjóra tíma í kringum föstudagsbænirnar, eftir hótun frá nýjum leiðtoga al-Qaida í Írak um hræðileg hermdarverk á næstu dögum til að hefnda fyrir al-Zarqawi, fyrrverandi leiðtoga al-Qaída í Írak. Sams konar öryggisráðstafanir voru einnig gerðar síðasta föstudag af ótta við hefndaraðgerðir.
Erlent Fréttir Mest lesið Líst ekki á breytingar Ingu á útivistartíma barna að vetri Innlent Minnist dóttur sinnar sem lést á Íslandi Innlent „Þetta er auðvitað ekki mjög pólitískt sexí“ Innlent Fegursta flugvél Íslands rifin Innlent Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Erlent Með umtöluð símtöl og skilaboð á sínu borði Innlent Fulltrúar rússneska sendiráðsins kallaðir á teppið Innlent Annar vinningur hættir að safnast upp í Vikinglottó Innlent Höfum setið eftir í baráttu við glæpahópa Innlent „Það er að verða til kynslóðaójöfnuður“ Innlent Fleiri fréttir Ásakanir á víxl milli leyniþjónusta eftir skothríð í Kænugarði Sakaskrá fjölda glæpamanna óvart hreinsuð Ungmenni drepin og þorp rifið á Vesturbakkanum Hefja síðasta áfanga ferðarinnar til Merkúrs Kviðdómendur fá síðasta séns Trump má enn ekki meina börnum um ríkisborgararétt Kyrrsetja grunsamlegt rússneskt skip á Svalbarða NATO og ESB ætli að bregðast við auknu gáleysi Rússa Eitraður reykjarmökkur veldur vandræðum í Suðaustur-Asíu Vonast til að geta haldið árásum í lágmarki fram yfir kosningar Trump um Harry og Meghan: „Ég var enginn aðdáandi“ Ekki 270 ferkílómetrar heldur 26 Ætluðu að vinna skemmdarverk í Danmörku Spyr hvort breyta ætti heitinu í Trumpsund Vita hverjir drónamennirnir í Leipzig eru Úkraínumenn skiptust á skotum í Kænugarði Løkke kallar rússneska sendiherrann á teppið Útséð um að markmið Parísarsamkomulagsins náist Pútín segir Rússland vera að vinna stríðið Myrt í tilefnislausri stunguárás á Times Square Neitar að hafa myrt Charlie Kirk Átökin við Persaflóa stigmagnast á ný Munu verja hagsmuni sína á norðurslóðum „með öllum ráðum“ Bandaríkjaher hefur árásir á Íran á ný Ná ekki saman um sakhæfi Clancy Kenna Rússum um sprengidrónana á flugvellinum Sprengjur nærri spennistöð Hákon sór embættiseið Mannskæðar árásir á Kænugarð sjöttu nóttina í röð Nærri þúsund talin af í Nepal og þúsunda enn saknað Sjá meira