Skoðun

Stór söfn og lítil þurfa geymslur

Páll Baldvin Baldvinsson skrifar
Síðustu daga hafa tíðindi af íslenskum safnamálum birst í Fréttablaðinu. Þar ber allt að sama brunni: íslensku stóru söfnin búa við ónógt húsnæði til sýninga og það sem verra er: geymsluhúsnæði þeirra er of lítið og víða bágborið miðað við öryggi og varðveislukröfur.

Heimildir Fréttablaðsins eru af tvennum toga: forstöðumenn safna hafa lýst ástandinu frá sínum bæjardyrum, og skýrsla sem menntamálaráðherra lét vinna fyrr á þessu ári bregður ljósi á málið. Lofa verður það sem þarft er unnið: menntamálaráðherra á hrós skilið fyrir skýrsluna – og stinga henni ekki undir stól. Flokkur ráðherrans hefur farið með málefni safna í þrjú kjörtímabil og ber því ábyrgð á ástandinu: skortir hátt í 17 þúsund fermetra af geymslurými svo viðunandi geti talist.

Söfn eru grunneining menningar í hverju samfélagi sem gjarnan er litið til þegar gesti ber að garði. Söfn hafa á síðustu áratugum skilgreint sig á nýjan leik víða um lönd, skipulagt sýningar með nýjum leiðum í boðun og upplýsingu – og hreinni skemmtun. það má sjá hér á landi í nýjum sýningum Þjóðminjasafns og sýningunni 871 í Aðalstræti er glæsilegt nýnæmi. Listasafn Íslands og Listasafn Reykjavíkur hafa sýnt hugdirfsku í samantekt innlendra sýninga og flutt hingað nýja og gamla myndlist sem hrærir gesti.

En betur má ef duga skal: fram undan eru tröllaukin verkefni: loksins á að gera eitthvað í marglofuðum og sviknum endurbótum á aðstöðu Náttúrugripasafnsins. Fagna ber frumkvæði borgarstjórnar Reykjavíkur og líka áhuga Borgarbyggðar á safninu. Það er fagnaðarefni þegar sveitarstjórnir sýna áhuga söfnum: vel skipulögð og hugsuð söfn eru virkjanir andans, þar falla vötn sem skila orku.

Ný söfn eru eitt, geymslurnar annað. Hvert safn þarf bakland: sérhæft húsnæði, nútímaleg skráningarkerfi, vel menntað og virkt starfsfólk. Nú skortir Listasafn Íslands og Þjóðminjasafnið geymslur, aðstaða Þjóðskjalasafns er slæm, Árnastofnun bíður þess að byggt verði við Þjóðarbókhlöðu svo handritin búi við sæmandi húsakost – meira að segja Landsbókasafnið bráðvantar geymslur. Í Kvikmyndasafninu er nóg pláss en þar er unnið við þarfa endurskráningu og lítið sinnt að koma safngripum á afrit. Og þannig má lengi halda áfram.

Í skýrslu áðherrans er hugað að litlum hluta safna þjóðarinnar: Nýlistasafnið er með safnkost sinn í hörmulegum aðstæðum, öryggis- og geymsluaðstæður byggðasafna eru víða slæmar. Er ekki sé ástæða að nema staðar og hætta dreifingu safna um landið sem stjórnvöld hafa staðið fyrir til að þóknast byggðasjónarmiðum. Smáþjóð hefur ekki efni á að drita söfnum um allar koppagrundir.

Til þess eru ráðherrar og ráðuneyti að hafa yfirsýn – ástand í safnamálum bendir til að hana hafi skort um árabil – jafnvel áratuga skeið. Það þarf pólitískt hugrekki til að viðurkenna það – og enn meira þor til að bæta úr ástandinu.

Vilji menn hafa efni á að kallast menningarþjóð – í verki.




Skoðun

Sjá meira


×